Um okkur
Icelandair Hótels er leiðandi keðja gæðahótela á Íslandi

Auk hótelana sem tilheyra Icelandair Hótel rekur fyrirtækið einnig sumarhótelin landskunnu Hótel Eddu á alls 12 stöðum í kringum landið og Hilton Reykjavík Nordica sem er eitt glæsilegasta hótel landsins.
Icelandair Hótel var stofnað árið 1998 undir nafninu Flugleiðahótel ehf. en þá voru öll hótel sem tengdust Flugleiðum sameinuð í eitt sjálfstætt fyrirtæki. Flugleiðahótel/Icelandair Hótels eru í eigu Icelandair Group.
Stærsta Icelandair Hótelið er í Reykjavík, Icelandair Hótel Reykjavík Natura áður þekkt sem Loftleiðir með 220 herbergi, glæsilegan veitingastað, Satt, auk innisundlaugar og Soley Natura Spa. Opnað verður annað hótel í Reykjavík árið 2012 en það mun heita Icelandair Hótel Reykjavík Marina og verður staðsett niður við gömlu höfn í nýja bryggjuhverfnu við nýja tólistahúsið Harpan. Hin 7 Icelandair Hótelin eru á landsbyggðinni með allt frá 23 herbergi upp í 63 herbergi og bjóða öllu upp á frábæra veitingastaði.
Stefna okkar
Stefna okkar er skýr. Við leggjum metnað okkar í að vera leiðandi keðja gæða hótela á Íslandi.
Hótel Edda hringinn í kringum landið
Eddu hótelin eru opin yfir sumartímann, frá júní byrjun til ágúst loka. Eddu hótelin eru alls 13 talsins, staðsett hringinn í kringum landið og er hvert þeirra tveggja til þriggja stjörnu hótel. Áhersla er lögð á lipra þjónustu og hagstæð verð. Flest hótelana eru rekin í heimavistarskólum en sum eru í byggingum sem einungis eru notuð í hótelrekstur. Herbergjafjöldinn er frá 20 herbergjum upp í 204 herbergi.
Frekari upplýsingar um Eddu hótelin er að finna á www.hoteledda.is
Eigendur
Öll hótelin eru í eigu og rekstri hjá Flugleiðahótelum ehf./Icelandair Hótel fyrir utan 7 hótel á landsbyggðinni sem rekin eru með sérstöku viðskiptasérleyfi sem leyfir þeim að nota sölukerfi Icelandair Hótel gegn því að uppfylla gæðastaðla okkar.
Flugleiðahótel ehf
Kennitala: 621297-6949
Nauthólsveg 52
101 Reykjavik - Iceland
Tölvupóstfang: sales@icehotels.is
Sími: 444 4000
Fax: 444 4001



