Snorri Thors hótelstjóri Reykjavík Marina
Snorri mun taka við nýju starfi sem hótelstjóri á Icelandair Hótel Reykjavík Marina frá og með áramótum.
Hann hóf störf á Hilton Reykjavík Nordica sem gestamóttökustjóri í júlí árið 2009. Hann er menntaður með BA í hótelstjórnun frá Washington State University /UCCR í Brig í Sviss og er jafnframt með master gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík. Snorri hefur víðtæka reynslu af hótelstörfum, er búin að eiga tvö góð ár á Hilton Reykjavík Nordica en hann hefur einnig unnið sem hótelstjóri áður, á Hótel Reykjavík 2004-2005, og svo aftur á Reykjavík Centrum frá 2005-2006.
Uppbygging Icelandair Hótel Reykjavík Marina er á áætlun, og verður hótelið opnað þann 19 apríl næstkomandi. Endilega skoðið nýuppfærðar myndir og upplýsingar á heimasíðu okkar hér.
Date. 30.11.2011



