Jólahús í Reykjanesbæ
Búið er að opna ilmandi jólahús í Kjarna í göngugötunni við Icelandair Hótel í Keflavík. Lögð verður áhersla á að kynna handverk, hönnun, myndlist, heimilisiðnað, mat og drykk. Listamenn, hönnuðir og handverksfólk selja fjölbreyttar vörur og er þar án efa að finna margar jólagjafir.
Opið verður alla fimmtudaga og föstudaga frá kl: 18:00 til 21:00 – Laugadaga frá 13:00 til kl: 21:00 og sunnudaga frá kl 13:00 til 17:00 fram að jólum. Jóli býður ykkur öll velkomin inn úr kuldanum í ilmandi hlýja jólastemningu. Hjá okkur er alltaf gott veður sama hvernig viðrar úti.
Nánari upplýsingar má finna hér eða á www.joli.is
1. desember 2011



