Andrésar Andar leikar á Akureyri í 18 - 22. apríl 2012
Icelandair Hótel Akureyri býður upp á einstaklega góða aðstöðu fyrir skíðafólk en í kjallara hótelsins er sérútbúin upphituð skíðageymsla.
Við bjóðum uppá holla og góða nestispakka til þess að taka með í brekkurnar á 1850 kr á mann. Skíðarútan stoppar fyrir framan hótelið verðið er 700 kr aðra leið og 1300 kr báðar leiðir. Einnig er góð aðstaða á hótelinu til þess að slappa af eftir viðburðarríkan dag og hægt að fá sér heitt kakó fyrir framan arineldinn í setustofunni eða gæða sér á ljúffengum kvöldverð á veitingastaðnum. Einnig verður notaleg stemning í útigarðinum þegar komið er heim úr brekkunum. Mörg herbergjanna er hægt að tengja saman og þau eru því tilvalin fyrir fjölskyldufólk. Þess má einnig geta að Sundlaug Akureyrar er hinu megin við götuna hjá okkur.
Við hvetjum ykkur til þess að bóka tímanlega!



