Dvöl í bleiku svítunni styrkir það góða starf sem félagið vinnur í samfélaginu.
Bleika svítan er skreytt teikningum Eggerts Péturssonar, listamanns, af Flóru Íslands.
Gestir sem gista í Bleiku svítunni fá aðgang að glæsilegri setustofu á fjórðu hæð hótelsins frá kl. 17:00 -23:00. Þar er tilkomumikið útsýni yfir Reyjavíkurflugvöll og Reykjanes. Léttar veitingar eru í boði auk þess sem gestir hafa aðgang að tölvu og þráðlausu neti. Jafnframt er aðgangur að sundlaug og gufu hótelsins frír. Gestir í bleiku svítunni fá 20% afslátt af Sóley líkamsskrúbbi.
Aðbúnaður: Tvíbreytt rúm „Queen“, stórt baðkar og sturta, baðsloppar, glæsileg setustofa, parket á gólfum, sími, LCD flatskjár, WIFI þráðlaust net (innifalið), straujárn og straubretti, kæliskápur, kaffi og-te áhöld. Hárþurrka, myrkvunargluggjatjöld. Sápur og sjampó á herbergjum eru frá Sóley Organics. Stærð svítunnar er 43 fm.















