Satt Eldhús
Staðurinn er með lifandi starfsemi allan daginn og býður jafnt hótelgesti sem innlenda viðskiptavini velkomna í morgunverð, hádegisverð, kaffi og/eða kvöldverð. Satt Eldhús leggur áherslu á íslenskt léttmeti, t.d. safa, súpur og salöt auk þess sem hamborgarar, girnilegar opnar samlokur ofl. er á boðstólum.
Stórt langborð, svokallað "Communal table", er fyrir þá sem vilja hittast saman í hópi eða eru einir og ófeimnir við að spjalla við ókunnuga. Við “Communal table” nýtur þú matarins í þakklæti með öðrum, kynnist fólki og blandar geði við heimamenn.
Í Betri stofunni er kjörið að slaka á eftir annasaman dag eða hita upp fyrir skemmtilegt kvöld. Hægt er að panta sér úrval af drykkjum af barnum og við bjóðum uppá spennandi rétti sem hægt er að gæða sér á í góðra vina hópi. Hjá okkur er gleðistund eða Happy Hour alla daga á milli 16.00 og 18.00. Einnig bjóðum við uppá skemmtilega viðburði t.d lifandi tónlist á fimmtudögum.
Satt morgunverðarhlaðborð alla daga frá 04.15-10.00. Verð 2.100 kr ef morgunmatur er bókaður fyrirfram. Verð 2.300 kr ef morgunmatur er keyptur á staðnum. Athugið að ekki er hægt að afbóka morgunmatinn eftir að búið er að skrá sig inn á hótelið.
Satt morgunverður
Er óhefðbundinn, minni og einfaldari í sniðum en sá sem við bjóðum uppá í morgunverðarhlaðborðinu. Lögð er áhersla á hollar, íslenskar nýjungar eins og heimabakað hollustubrauð, heimalagaða sultu og glútenlausa fæðu, gott kaffi og nýpressaðan safa. Gríptu morgunverðinn með þér eða borðaðu á staðnum.
Satt Brunch er létt hlaðborð sem sameinar morgun- og hádegisverð og er framreitt laugardaga og sunnudaga frá kl. 11:30 til 14:00.
- Verð 3.100 kr á mann.
- 6-12 ára fá 50% afslátt.
- Frítt fyrir 6 ára og yngri.
- Þeir sem eru búnir að borga fyrir morgunmat en vilja frekar koma í brunch geta greitt 1200 kr aukalega á mann.
Opnunartími
- Satt Eldhús: Opið frá kl. 11.00 - 22.00
- Satt Bar: Opinn frá kl. 11.00 - 01.00
- Satt Betri stofa: Opin frá kl. 11.00 - 01.00
- Satt morgunverður: Hægt er að fá morgunverð frá kl. 04.15 - 10.00
Árshátíð framundan? Erum með glæsilega veislusali í öllum/nokkrum/ýmsum stærðum. Gerum tilboð í árshátíðir og erum með góð gistitilboð.Nánari upplýsingar á naturameetings@icehotels.is.
Hér má finna heimasíðu veitingastaðarins Satt
Hér má sjá myndband frá veitingastaðnum Satt















