Sundlaug, gufubað og heitur pottur
Til að endurspegla áherslur okkar á náttúrulega heilsu, er í sundlaugin fyllt með söltu vatni sem hefur sannað að bæti heilsu manna. Það er einnig notalegur arinn við sundlaugina sem skapar skemmtilega stemningu og miðar að því að gestir njóti sín og slaki á. Gufubaðið og heiti potturinn er svo ómissandi partur af því að fara í heilsulind auk þess sem Soley Natura Spa býður gestum upp á líkamsskrúbb, sem hægt er að kaupa með stökum aðgangi að baðstofu en nauðsynlegt er að panta skrúbbinn fyrirfram.
Fegurð - Snyrtistofan
Býður upp á alla almenna snyrtistofuþjónustu og má þar nefna andlitsböð, litanir, vaxmeðferðir, jurtatattoo, handsnyrtinga auk fótaaðgerða. Ýmsar tegundir af nuddi eru í boði, ásamt heitsteinanuddi. Snyrtifræðimeistarar okkar hafa áralanga reynslu, og hafa sérhæft sig í lífrænum andlits og líkamsmeðferðum með Sóley Organics í sambland með íslenskum handtíndum jurtum. Þessar meðferðir eru búnar til með hámarks þægindi og lúxus í huga, og með þá sérstöðu að vera einungis í boði á Lipurá snyrtistofu.
Organic Spa Vörur
Sóley Natura Spa notar eingöngu Sóley Organics vörur, sem þú finnur einnig á hótelherberginu þínu og til sölu í gjafavörubúð hótelsins. Allar vörur frá Sóley Organics eru unnar úr handtíndum jurtum, eru blanda af lífrænum Herbal efnum eins og íslensku birki og arómatískum ilmkjarnaolíum og sérvaldar vegna virkni þeirra og hreinleika. Sóley Organics vörunar eru án paraben- eða annarra óæskilegra efna.
Jóga og líkamsræktarstöð
Líkamsræktarstöð er opin öllum gestum á opnunartíma sundlaugarinnar, en jóga námskeið (Kundalini og Hatha Joga) eru í boði fyrir þá sem skrá sig í fyrirfram. Útiþrek er skemmtileg nýbreyttni þar sem áhersla er lögð á skemmtilegar æfingar og góðan félagsskap í fallegu umhverfi Öskjuhlíðar. Sundleikfimi í saltvatni er einnig nýjung og er ætluð öllum aldurshópum, jafnt konum sem körlum.
- Sóley Natura Spa býður einnig reglulega námskeið og fyrirlestra á ensku um ýmis málefni tengd heilsu og heilbrigði.
- Hægt er að fá gjafakort með öllum meðferðum Sóley Natura Spa.
- Hér ma finna verðskrá fyrir alla þá þjónustu sem Sóley Natura Spa veitir í PDF skjali
- Frekari upplýsingar má finna á Soleynaturaspa.is
Opnunartímar
Snyrtistofunnar Lipurtá
- Virka daga frá 09:00-19:00
- Laugardaga frá 10:00-16:00
- Sunnudaga 12.00 - 16.00
Nuddstofan
- Virka daga frá 07:00-21:00
- Laugardaga frá 11:00-18:00
- Sunnudaga 12.00 - 18.00
Baðstofan - (Baðstofan samanstendur af upplýstri varmlaug, setlaug, blautgufu, þurrgufu og setustofu við eldstæði.)
- Virka daga frá 07:00-21:00
- Laugardaga frá 08:00-20:00
- Sunnudaga frá 12:00-18:00
Nánari upplýsingar um gjafabréf í síma og tölvupósti.
Frekari upplýsingar má fá í síma 444 4085 eða á netfangið spa@soleynaturaspa.is










