Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Svíta - Gimli

Fyrir þá sem vilja hámarks þægindi og lúxus. Rúmgóð svíta með setustofu, stóru svefnherbergi og tveim baðherbergjum.
 

Aðbúnaður:  Tvíbreytt rúm „Queen“, sími,  LCD flatskjár, WIFI þráðlaust net (innifalið), buxnapressa, kæliskápur, setustofa, kaffi og –te áhöld, straujárn, straubretti, hárþurrka, parket á gólfi, myrkvunargluggatjöld, baðsloppar, öryggishólf, baðherbergi með baðkari og sturtu. Sápur og sjampó frá Sóley Organics.
Stærð u.þ.b. 60 fm. Gestir í svítunni fá 20% afslátt af Sóley líkamsskrúbbi.

Bleika svítan er einstaklega glæsileg, innréttuð í nútímalegum stíl með rómantísku yfirbragði. Bleika svítan er tileinkuð baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Hluti af söluágóða herbergisins mun renna til Krabbameinsfélags Íslands ár hvert.

Listamannaherbergin eru tileinkuð þrettán íslenskum samtímalistamönnum. Listaverkin gefa herbergjunum líka einstaklega stílhreint og fallegt yfirbragð og er af þeim mikil prýði fyrir Icelandair Hótel Reykjavík Natura.

Deluxe herbergin eru fyrir þá sem vilja þægindi og nóg pláss. Herbergin eru rúmgóð, björt og fallega innréttuð. Deluxe herbergin eru mjög vinsæl meðal barnafjölskyldna, nóg pláss fyrir alla.

Eitt af því sem vekur áhuga útlendinga á Íslandi er hin ríka menningarhefð þjóðarinnar. Okkur þótti þess vegna ástæða til að bregðast við því með því að gera bókmenntum og listum hátt undir höfði, svo gestir geti frá fyrsta degi orðið varir við þá andagift sem Íslendingar hafa upp á að bjóða.

Natura herbergin eru rúmgóð, björt og hlýleg. Þau eru öll fallega innréttuð og í hverju þeirra finnur þú öll þau helstu þægindi sem þú átt að venjast á 4 stjörnu hóteli.

220 HERBERGI - ÞITT ER VALIÐ

Icelandair Hótel Reykjavík Natura býður upp á nokkar gerðir af herbergjum. Standard herbergi með nátturuþemu, Deluxe herbergi - þar af nokkur herbergi með Floruþemu, Skáldaherbergi, Listamannaherbergi og tvær svítur.

loading