Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Skáldaherbergi

Eitt af því sem vekur áhuga útlendinga á Íslandi er hin ríka menningarhefð þjóðarinnar. Okkur þótti þess vegna ástæða til að bregðast við því með því að gera bókmenntum og listum hátt undir höfði, svo gestir geti frá fyrsta degi orðið varir við þá andagift sem Íslendingar hafa upp á að bjóða.

Öll Skáldaherbergin eru tileinkuð einu íslensku höfuðskáldi og má þar meðal annars nefna Halldór Laxness, Stein Steinarr, Davíð Stefánsson og Hannes Hafstein. Herbergin eru smekklega innréttuð í anda þeirra snillinga sem herbergin er tileinkuð. Á herbergjunum er til sýnis brot af verkum þeirra auk upplýsinga um ævistarf þeirra og myndir af skáldunum. Í bókastofunni á jarðhæðinni eru bókmenntir eftir þessa höfunda ásamt bókum um náttúru Íslands og myndlistarbækur.

Gestir sem gista á Listamannaherbergjum fá aðgang að glæsilegri setustofu á fjórðu hæð hótelsins frá kl. 17:00 -23:00. Þar er tilkomumikið útsýni yfir Reyjavíkurflugvöll og Reykjanes.  Léttar veitingar eru í boði auk þess sem gestir hafa aðgang að tölvu og þráðlausu neti. Gestir í listamannaherbergjum fá 20 % afslátt af Sóley líkamsskrúbbi.

Aðbúnaður:  Tvíbreytt rúm „Queen“, sími,  sjónvarp, WIFI þráðlaust net (innifalið), buxnapressa, kæliskápur, setustofa, kaffi og –te áhöld, straujárn, straubretti, hárþurrka, parket á gólfi, myrkvunargluggatjöld, Skáldaherbergin eru öll með sturtu. Sápur og sjampó frá Sóley Organics. Stærð u.þ.b. 21. fm

Listi yfir Skáldaherbergi

Herbergi 401 / Hannes Hafstein
Herbergi 402 / Jóhann Sigurjónsson
Herbergi 403 / Halldór Laxness
Herbergi 404 / Einar Benediktsson
Herbergi 406 / Stephan G. Stephansson
Herbergi 408 / Davíð Stefánsson
Herbergi 410 / Snorri Hjartarson
Herbergi 411 / Tómas Guðmundsson
Herbergi 412 / Jón Helgason
Herbergi 421 / Steinn Steinarr
 

Bleika svítan er einstaklega glæsileg, innréttuð í nútímalegum stíl með rómantísku yfirbragði. Bleika svítan er tileinkuð baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Hluti af söluágóða herbergisins mun renna til Krabbameinsfélags Íslands ár hvert.

Listamannaherbergin eru tileinkuð þrettán íslenskum samtímalistamönnum. Listaverkin gefa herbergjunum líka einstaklega stílhreint og fallegt yfirbragð og er af þeim mikil prýði fyrir Icelandair Hótel Reykjavík Natura.

Fyrir þá sem vilja hámarks þægindi og lúxus. Rúmgóð svíta með setustofu, stóru svefnherbergi og tveim baðherbergjum.
 

Deluxe herbergin eru fyrir þá sem vilja þægindi og nóg pláss. Herbergin eru rúmgóð, björt og fallega innréttuð. Deluxe herbergin eru mjög vinsæl meðal barnafjölskyldna, nóg pláss fyrir alla.

Natura herbergin eru rúmgóð, björt og hlýleg. Þau eru öll fallega innréttuð og í hverju þeirra finnur þú öll þau helstu þægindi sem þú átt að venjast á 4 stjörnu hóteli.

220 HERBERGI - ÞITT ER VALIÐ

Icelandair Hótel Reykjavík Natura býður upp á nokkar gerðir af herbergjum. Standard herbergi með nátturuþemu, Deluxe herbergi - þar af nokkur herbergi með Floruþemu, Skáldaherbergi, Listamannaherbergi og tvær svítur.

loading