Gestir sem gista á Listamannaherbergjum fá aðgang að glæsilegri setustofu á fjórðu hæð hótelsins frá kl. 17:00 -23:00. Þar er tilkomumikið útsýni yfir Reyjavíkurflugvöll og Reykjanes. Léttar veitingar eru í boði auk þess sem gestir hafa aðgang að tölvu og þráðlausu neti. Gestir í listamannaherbergi fá 20% afslátt af Sóley líkamsskrúbbi.
Aðbúnaður: Tvíbreytt rúm „Queen“, sími, LCD flatskjár, WIFI þráðlaust net (innifalið), buxnapressa, kæliskápur, setustofa, kaffi og –te áhöld, straujárn, straubretti, hárþurrka, parket á gólfi, myrkvunargluggatjöld, Skáldaherbergin eru öll með sturtu. Sápur og sjampó frá Sóley Organics. Stærð u.þ.b. 21. fm.
Listamannaherbergin prýða list samtímalistamanna úr fremstu röð íslenskrar myndlistar. Ásamt ljósmyndum af verkum listamannanna eru upplýsingar um hvern þeirra á hverju herbergi fyrir sig. Gestir okkar eru því að kynnast því besta sem er að gerast í myndlist á Íslandi í dag.
Listi yfir Listamannaherbergi
Herbergi 315 / Birgir Snæbjörn Birgisson
Herbergi 312 / Eggert Pétursson
Herbergi 305 / Georg Guðni Hauksson
Herbergi 314 / Helgi Þorgils Friðjónsson
Herbergi 306 / Hildur Bjarnadóttir
Herbergi 307 / Hulda Hákon
Herbergi 308 / Kristín Gunnlaugsdóttir
Herbergi 310 / Ólöf Nordal
Herbergi 302 / Ragna Róbertsdóttir
Herbergi 304 / Rúrí
Herbergi 301 / Sigurður Árni Sigur›sson
Herbergi 309 / Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
Herbergi 303 / Þórdís Aðalsteinsdóttir












