Deluxe herbergi eru skreytt teikningum Eggerts Péturssonar, listamanns, af Flóru Íslands, ásamt upplýsingum um hvernig plöntur á Íslandi hafa verið notaðar til lækninga gegnum árin. Gestir í Deluxe herbergi fá 20% afslátt af Sóley líkamsskrúbbi.
Aðbúnaður: Val um tvö rúm eða tvíbreytt rúm, sími, sjónvarp, WIFI þráðlaust net (innifalið), buxnapressa, kæliskápur, setustofa, kaffi og –te áhöld, straujárn, straubretti, hárþurrka, myrkvunargluggatjöld, baðsloppar, Deluxe herbergin eru öll með baðkari/sturtu. Sápur og sjampó frá Sóley Organics. Stærð u.þ.b. 41fm.










