Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Herbergi á Icelandair Hótel Reykjavík Natura

220 HERBERGI - ÞITT ER VALIÐ

Icelandair Hótel Reykjavík Natura býður upp á nokkar gerðir af herbergjum. Standard herbergi með nátturuþemu, Deluxe herbergi - þar af nokkur herbergi með Floruþemu, Skáldaherbergi, Listamannaherbergi og tvær svítur.

Öll herbergi eru björt, rúmgóð og útbúin öllum nútímaþægindum eins og þráðlausu neti og sjónvarpi. Á öllum herbergjum eru sápur og sjampó unnið úr íslenskum jurtum frá Sóley Organics. Þeir gestir sem gista á Listamanna-, Skálda- og Deluxe herbergjum okkar fá aðgang að glæsilegri setustofu á fjórðu hæð hótelsins frá kl. 17:00 -23:00. Þar er tilkomumikið útsýni yfir Reyjavíkurflugvöll og Reykjanes. Léttar veitingar eru í boði auk þess sem gestir hafa aðgang að tölvu og þráðlausu neti.

Icelandair Hótel Reykjavík Natura er reyklaust hótel.

Bleika svítan er einstaklega glæsileg, innréttuð í nútímalegum stíl með rómantísku yfirbragði. Bleika svítan er tileinkuð baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Hluti af söluágóða herbergisins mun renna til Krabbameinsfélags Íslands ár hvert.

Listamannaherbergin eru tileinkuð þrettán íslenskum samtímalistamönnum. Listaverkin gefa herbergjunum líka einstaklega stílhreint og fallegt yfirbragð og er af þeim mikil prýði fyrir Icelandair Hótel Reykjavík Natura.

Fyrir þá sem vilja hámarks þægindi og lúxus. Rúmgóð svíta með setustofu, stóru svefnherbergi og tveim baðherbergjum.
 

Deluxe herbergin eru fyrir þá sem vilja þægindi og nóg pláss. Herbergin eru rúmgóð, björt og fallega innréttuð. Deluxe herbergin eru mjög vinsæl meðal barnafjölskyldna, nóg pláss fyrir alla.

Eitt af því sem vekur áhuga útlendinga á Íslandi er hin ríka menningarhefð þjóðarinnar. Okkur þótti þess vegna ástæða til að bregðast við því með því að gera bókmenntum og listum hátt undir höfði, svo gestir geti frá fyrsta degi orðið varir við þá andagift sem Íslendingar hafa upp á að bjóða.

Natura herbergin eru rúmgóð, björt og hlýleg. Þau eru öll fallega innréttuð og í hverju þeirra finnur þú öll þau helstu þægindi sem þú átt að venjast á 4 stjörnu hóteli.

loading