Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Fundir á Icelandair Hótel Reykjavík Natura

Icelandair Hótel Reykjavík Natura er fullkominn staður fyrir ráðstefnu eða fundi. Frá pappír og penna til hljóðkerfis og fundarstands, við höfum allt sem þú þarft fyrir árangursríka fundi og ráðstefnur. Skjávarpar, skjáir, töflur og fléttitöflur eru til staðar og getum við hjálpað þér við skipulagið til þess að hámarka árangurinn.

Við bjóðum upp á 12 fundar- og ráðstefnusali sem rúma allt frá 4 upp í 340 gesti í sæti. Ráðstefnu- og fundaraðstaða á Icelandair Hótel Reykjavík Natura hentar jafnt fyrir minni fundi og viðburði sem og stærri ráðstefnur, sýningar og kynningar. Öll aðstaða og þjónusta fyrir vel heppnaða ráðstefnu / fund á sama stað.

Veitingardeild veitingastaðsins Satt býður upp á hádegis- og kvöldverðarhlaðborð á hverjum degi ásamt matseðli og að fundi loknum er svo alltaf hægt að skella sér í sund og gufu eða nudd hjá heilsulindinni Soley Natura Spa.

 

Ráðstefnu og fundaraðstaða á Icelandair Hótel Reykjavík Natura
Icelandair Hótel Reykjavík Natura býður fundar- og ráðstefnusali sem henta allt frá litlum einkasamkomum og fundum til stórra fagnaða, ráðstefna og sýninga. Við aðstoðum þig við undirbúning og skipulag hvers viðburðar og bjóðum upp á vingjarnlegt andrúmsloft, fagmennsku og ljúffengar veitingar frá veitingastaðnum Satt.

Aðalráðstefnusalur Icelandair Hótel Reykjavík Natura rúmar allt að 340 gesti í sæti en að auki er hægt að skipta honum niður í þrjá minni fundarsali. Við bjóðum einnig upp á fullkominn bíósal (háskerpu bíóskjávarpa og hljóðkerfi) sem rúmar 110 gesti í sæti og hentar hann vel hvort sem er fyrir minni fyrirlestra eða bíósýningar. Einnig eru á Icelandair Hótel Reykjavík Natura átta minni salir sem rúma frá fjórum gestum og upp úr. Á þriðju og fjórðu hæð hótelsins eru tveir nýuppgerðir, litlir fundarsalir með frábæru útsýni yfir flugvöllinn. Í „Millilendingu“ á þriðju hæð er þægileg aðstaða fyrir fund fyrir allt að 10 manns, þar er einnig að finna fullkominn fjarfundarbúnað og fylgja afnot af honum með fundarsalnum. Á fjórðu hæðinni er einstaklega falleg setustofa, „Hugarflug“ sem hentar vel fyrir fámenna fundi, svo sem starfsmannaviðtöl, stefnumótunar- eða hugarflugsfundi.

Tölvuaðaðstaða/herbergi með tölvu, internet aðgangi og prentara, ásamt ljósritunarþjónustu, er til afnota allan sólarhringinn fyrir alla sali hótelsins.

Þjónusta
Fundaraðstaða er undirbúin fyrir komu gesta og þingfreyjur / -þjónar eru til aðstoðar yfir fundartíma ásamt tæknimanni. Veitingar frá veitingastaðnum Satt eru bornar fram eftir óskum. Við aðstoðum þig við undirbúning og skipulag hvers viðburðar og bjóðum upp á vingjarnlegt andrúmsloft, fagmennsku og sveigjanleika.
Frekari upplýsingar má nálgast á netfanginu:: conference@icehotels.is eða í síma 444 4020 eða 444 4040

Tækjabúnaður
Aðgangur að þráðlausu interneti er í allri fundaraðstöðu. Í öllum fundar- og ráðstefnusölum eru skjávarpi og tjald, fletti- og tússtafla, blöð og pennar. Í aðalráðstefnusalnum og bíósalnum er einnig hljóðkerfi, ræðupúlt með hljóðnema (og tölvu í Þingsal 1), ásamt túlkaaðstöðu.

 

Fundartilboð á Icelandair Hótel Reykjavík Natura

Heill- eða hálfur dagur.

Fundarsalur fyrir viðeigandi fjölda valinn af starfsfólki Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Í boði hússins eru vatnskönnur með ávöxtum og smákökur í krukku.

Íslenskt og hefðbundið

  • Ávaxta og/eða grænmetis smádrykkur.
  • Íslenskt morgunkaffi og með því
  • Ferskir ávextir
  • Kaffi/te og vatnskönnur með ávöxtum
  • 2 rétta hádegisverður að hætti kokksins
  • Íslenskt miðdagskaffi og með því
  • Kaffi/te og vatnskönnur með ávöxtum

Íslenskt og hefðbundið í heilan og hálfan dag

  • 1/2 kr. 2700 á mann
  • 1/2 kr. 5700,- á mann með hádegisverði
  • 1/1 kr. 5.500,- kr. á mann
  • 1/1 kr. 7.900,- kr. á mann með hádegisverði

Innifalið í öllum sölum er; skjávarpi, tjald, flettitafla og tússtafla. Að auki er innifalið í Þingsal 1-4 einn hljóðnemi í púlti og tölva. Í Þingsal 5 er einnig innifalinn hljóðnemi í púlti.

  • Fundarherbergi valið af starfsfólki ráðstefnudeildar miðað við fjölda gesta .
  • Öll verð innihalda VSK og geta breyst fyrirvaralaust.

Frekari upplýsingar má nálgast á netfanginu conference@icehotels.is eða í síma 444 4020.
 

loading