Brúðkaupsnóttin á Icelandair Hótel Reykjavík Natura

Sérsniðið fyrir þá sem vilja eiga ógleymanlega dvöl við sérstök tilefni.

Skúlptúrar Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur á Icelandair Hótel Reykjavík Natura

"Bændur í Borgarferð"

Íslensk hönnun í maí á Icelandair Hótel Reykjavík Natura

Tískusýning alla föstudaga í maí kl: 17.00.

Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Icelandair Hótel Reykjavík Natura

Icelandair Hótel Reykjavík Natura (áður Hótel Loftleiðir) er nýlega endurbætt 220 herbergja, fjögurra stjörnu hótel, staðsett í fallegu umhverfi Öskjuhlíðar og baðstrandarinnar í Nauthólsvík. Nafn hótelsins er innblásið af náttúrufegurð umhverfisins. Þar er að finna frábærar göngu-/hjólaleiðir ásamt fjölbreyttu dýralífi. Aðeins er um 20 mínútna gangur inn í miðbæ Reykjavíkur en fyrir þá sem vilja spara sporin bjóðum við fríar ferðir með hótelskutlu til og frá miðbænum fimm sinnum á dag og í verslunarmiðstöðina Kringluna en það þarf að bóka sérstaklega í móttökunni.

HORFÐU Á ICELANDAIR HÓTEL REYKJAVÍK NATURA VIDEO HÉR

Á Icelandair Hótel Reykjavík Natura er boðið upp á alla þá þjónustu sem vænta má á fyrsta flokks hóteli. Veitingastaðurinn Satt býður upp á staðbundið, ferskt hráefni sem matreitt er af innlifun. Satt skiptist í Eldhús (léttir réttir) og Betri stofu, sem er fínni veitingastaður, auk þess sem þar er glæsilegur bar og kaffihús. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er eina hótelið í Reykjavík sem býður upp á sundlaug innanhúss og er aðgangur að henni frír fyrir gesti hótelsins. Sóley Natura Spa er ný heilsulind staðsett á jarðhæð hótelsins en þar er í boði alls konar unaðslegt dekur í himnesku umhverfi.

Í anddyri hótelsins er gjafavöruverslun og upplýsingamiðstöð (ITA) auk fjölda veislu- og ráðstefnusala. Þráðlaus nettenging er í boði gegn vægu gjaldi. Gestir sem dvelja á Deluxe, Art og Poet herbergjum fá aðgang að einstaklega fallegri setustofu á fjórðu hæð hótelsins þar sem hægt er að slappa af og njóta útsýnis auk þess sem boðið er upp á heita og kalda drykki og aðgang að tölvu.

 

Sólborg Steinþórsdóttir er hótelstjóri á Icelandair Hótel Reykjavík Natura og deilir hún með okkur því sem Reykjavík hefur upp á að bjóða að hennar mati.

Sólborg Steinþórsdóttir hefur verið hótelstjóri á Icelandair Hótel Reykjavík Natura (áður Hótel Loftleiðum) frá árinu 2005. Hún hefur yfir 30 ára reynslu úr hótelbransanum m.a. sem hótelstjóri á Hótel Eddu. Fjölskyldan er stærsta áhugamál hennar og yfir sumartímann ferðast hún innanlands og er þá stefnan oftast tekin á nýja staði sem fjölskyldan hefur ekki heimsótt áður. Þegar tími gefst lætur Sólborg sig ekki vanta á góðar lista- og leikhússýningar eða tónleika.

Sólborg er þó fyrst og fremst göngu- og útivistarkona en hún hefur gengið á Fimmvörðuháls og Hvannadalshnjúk ásamt því að hafa farið óteljandi ferðir á Esjuna. Að hennar mati er Esjan tilvalið útivistarsvæði fyrir alla fjölskylduna enda útsýnið mjög fallegt og fjallið í þægilegri fjarlægð frá ys og þys stórborgarinnar. Uppáhaldsstaðir hennar í nágrenni Reykjavík Natura eru Öskjuhlíðin og Nauthólsvík enda um frábær útivistarsvæði að ræða með fjölbreytta möguleika, t.d göngu- og hjólaleiðir sem henta allri fjölskyldunni og svo auðvitað sjósundið sem er spennandi kostur fyrir þá sem þora.

Sólborg býður ykkur velkomin á Icelandair Hótel Reykjavík Natura!

  • Icelandair Hótel Reykjavík Natura hét áður Hótel Loftleiðir
  • Fjögurra stjörnu hótel í Reykjavík
  • 220 herbergi
  • 20-30 mínútna gangur inn í miðbæ Reykjavíkur
  • Fríar ferðir með hótelskutlu til og frá miðbænum og í verslunarmiðstöðina Kringluna fimm sinnum á dag
  • Nýr veitingastaður, Satt
  • Bar og kaffihús
  • Frítt í strætó fyrir hótelgesti.
  • Sóley Natura Spa - heilsulind
  • Frír aðgangur fyrir hótelgesti að Sóley Natura Spa (heitur pottur, blaut og -þurrgufa ásamt innanhúss sundlaug (saltvatn)
  • Sundlaugarsvæðið er dekurreitur þar sem fólk getur fengið skrúbb úr íslenskum jurtum og notið hvíldar og dekurs (vægt gjald)
  • Fundar- og ráðstefnusalir
  • Bíósalur (háskerpa) og bókasafn
  • 3 lyftur
  • Þráðlaust Internet (gegn vægu gjaldi)
  • Hjólaleiga
  • Næg bílastæði
  • Hjólastólaaðgengi
  • Aðgangur að betri stofu á 4. hæð „Hugarflugi“
  • Vídeólistaverkið BLIK eftir Rúrí er staðsett í gestamóttöku
  • ITA - gjafavöruverslun og upplýsingamiðstöð
  • Stutt frá Nauthólsvík - ylströnd og hvítur sandur
  • Stutt frá Umferðarmiðstöðinni
  • Stutt frá Reykjavíkurflugvelli
  • Nýtt listaverk eftir Aðalheiði S Eysteinsdóttur: Sauðkindur, í anddyri gestamóttöku
  • Á öllum herbergjum eru sápur og sjampó unnið úr íslenskum jurtum frá Sóley Organics
  • Umhverfisvænar snyrtivörur frá Sóley Organics eru seldar í gjafavöruverslun hótelsins
  • Icelandair Hótel Reykjavík Natura er grænt hótel með ISO 14001 vottun
  • Hótelgestir fá 10% afslátt af miðaverði á Listasafn Reykjavíkur
  • Vegalengdir frá Icelandair Hótel Reykjavík Natura
  • Keflavíkurflugvöllur 48 km / 29.8 miles
  • Bláa Lónið 48 km / 29.8 miles
  • Miðbær Reykjavíkur 2 km / 1.2 miles
  • Ráðhús Reykjavíkur 2 km / 1.2 miles
  • Öskjuhlíð 500 m / 0.3 miles
  • Nauthólsvík 1 km / 0.6 miles
  • Hallgrímskirkja 1,5 km / 0.9 miles
  • Verslunarmiðstöðin Kringlan 2 km / 1.2 miles
  • Þjóðminjasafn Íslands 2,5 km / 1.55 miles
  • Gullfoss 123 km / 76 miles
  • Geysir 113 km / 70 miles
  • Þingvellir 49 km / 30.4 miles

Afþreying

ÖSKJUHLÍÐ
Öskjuhlíðin er ekki aðeins einn fallegasti staður Reykjavíkur heldur er þar margt spennandi að finna. Mikil fjöldi stíga og hlaupa-/hjólaleiða er í skógi vöxnum hlíðum Öskjuhlíðar.

Um 200.000 þúsund tré hafa verið gróðursett í Öskjuhlíðinni, einu grænasta svæði Reykjavíkurborgar. Svæðið er einnig áhugavert frá sögulegu og jarðfræðilegu sjónarhorni. Perlan býður án efa upp á besta útsýnisstaðinn til þess að skoða borgina og nágrenni hennar. Manngerður hver fangar líka athygli gestana, en hverinn spúir heitu vatni hátt upp í loftið með jöfnu millibili. Hafðu augun opin því þú gætir rekist á hóp af kanínum að leik.

YLSTRÖNDIN NAUTHÓLSVÍK - HVÍT SANDSTRÖND
Nauthólsvík er eina baðströndin í Reykjavík sem býður upp á hvítan strandsand og upphitað lón. Ströndin er í um 5 mínútna göngufæri frá Icelandair Hótel Reykjavík Natura en gengið er meðfram skógivaxinni Öskjuhlíðinni.
Aðstaðan í Nauthólsvík er til fyrirmyndar og fyrir þá sem ekki treysta sér til þess að fara í sjóinn er stór upphituð (38 ° C ) baðlaug fyrir framan þjónustumiðstöðina. Frábær staður til þess að eyða deginum. Frekari upplýsingar má nálgast í síma 444 4000 eða í gestamóttöku Icelandair Hótel Reykjavík Natura.
ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR Í LEIKSTJÓRN BALTASAR KORMÁKS Á REYKJAVÍK NATURA
Íslenskar myndir í leikstjórn Baltasar Kormáks eru sýndar í bíósal Reykjavík Natura 6 daga vikunnar.

Hafið (2002) sýnd sunnudaga og miðvikudaga
Mýrin (2006)sýnd þriðjudaga og laugardaga
Brúðguminn (2008) mánudaga og föstudaga

Sýningar hefjast klukkan 21.00. Aðgangur frír. Enskur texti.

VIDEO FRÁ REYKJAVÍK NATURA
Hér má sjá video frá Reykjavik Natura
 

Viðburðir

Kvöldsögur „Icelandic Bedtime Stories“
Á hverjum fimmtudegi kl. 21:00 bjóðum við hótelgestum að hlýða á Kvöldsögur "Bedtime Stories”

Við hvetjum gesti til þess að mæta niður á 1 hæð (bókastofu) hótelsins og hlýða á upplestur íslenskra bókmennta. Upplestur fer fram á ensku og er aðgangur frír. Frekari upplýsingar má nálgast í síma 444 4000 eða í gestamóttöku Icelandair Hótel Reykjavík Natura.

AMAZING ICELAND Á ICELANDAIR HÓTEL REYKJAVÍK NATURA
Er til sýnis í bíósal hótelsins alla daga á ensku og þýsku. Fræðandi og falleg mynd um Íslenska náttúru sýnd í háupplausn (HD) í bíósal Icelandair Hótel Reykjavík Natura.

Frekari upplýsingar

  • Myndin er sýnd í háupplausn "Full High-Definition" í glæsilegum bíósal Icelandair Hótel Reykjavik Natura
  • Myndin er sýnd með þýsku og ensku tali
  • Lengd: 54 mín
  • Myndin er sýnd á hverjum degi kl: 19:00 (þýska) / kl: 20:00 (ensku)
  • Aðgangur: 1100 kr.

Þú getur fundið frekari upplýsingar á Reykjavik By Day and Night eða í móttökunni í Reykjavík Natura

GRÆNN APRÍL Á REYKJAVÍK NATURA
GRÆNN APRÍL er umhverfisátak, sem hefur að eitt að markmiði að koma á framfæri við neytendur upplýsingum um vöru, þekkingu og þjónustu sem er græn og umhverfisvæn, svo og upplýsingum um hvaða fyrirtæki bjóða upp á slíkt.

Þetta er í annað sinn sem félagasamtökin GRÆNN APRÍL standa fyrir þessu mánaðarlanga átaki, með góðri þátttöku fyrirtækja sem vilja skilgreina hluta af eða alla vöru sína sem græna og umhverfisvæna. Neytendur hafa gífurlega mikið vald og geta ráðið miklu um framtíð okkar og það hversu umhverfisvæn hún verður, því peningar tala sínu máli þegar keypt er inn. Því er svo mikilvægt að neytendur viti upp á hvað íslensk fyrirtæki bjóða svo þeir geti valið grænni kostinn næst þegar þeir kaupa inn.


Árið 2012 er lögð áhersla á SAMGÖNGUR, HÚSNÆÐI og VELLÍÐAN og verður fjallað um þessa þætti í gegnum framlag  þátttakenda á vefsíðunni www.graennapril.is og á samfélagssíðu okkar á Facebook www.facebook.com/graennapril.is en áhersla er lögð á að dreifa upplýsingum um grænu málin til sem flestra. GRÆNN APRÍL gefur líka út fjögur veftímarit í aprílmánuði, með upplýsingum um grænni leiðir að betri framtíð. Morgunblaðið gefur út sértímaritið GRÆNN APRÍL sem dreift verður til áskrifenda 31. mars. Umframeintökum verður dreift í Kringlunni 1. apríl þar sem umhverfisátakið hefst formlega, svo og í gegnum þátttakendur í verkefninu.


Séð og heyrt setur grænu málin í fókus allan mánuðinn og fræðir lesendur um lífið í takt við umhverfið með því að fylgjast með einni fjölskyldu. Skjárinn sendir út 5 örþætti á viku í opinni dagskrá, mánudag til föstudags allan apríl, þar sem þátttakendur og þekktir einstaklingar segja frá sínum hugleiðingum um umhverfið og okkur. Fréttablaðið mun birta greinar um umhverfismál og fréttir tengdar þeim. Ljósvakamiðlar og aðrir miðlar munu einnig miðla góðum og grænum sögum úr ýmsum áttum í GRÆNUM APRÍL.


Dokkan þekkingarmiðlun stendur fyrir ráðstefnu um umhverfisvænar byggingar, samgöngur og umhverfisstaðla, og Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands stendur ásamt GRÆNUM APRÍL að viðburði 22. apríl sem er Dagur jarðar. Stefnan er að gera GRÆNAN APRÍL í ár grænni en hann var í fyrra.
 

loading