Kaffi Slippur á Icelandair Hótel Reykjavík Marína
Á Kaffi Slipp ríkir skemmtileg stemning, litríkt veggfóður, fersk blóm og skemmtilegir antíkmunir í bland við nýstárlega hönnun. Hér er sannkölluð veisla bæði fyrir augað, munninn og já, í rauninni fyrir allan líkamann.
Kaffi Slippur nýtist á margvíslegan hátt:
- Morgunverður: girnilegur, hollur og veitir þér orku að minnsta kosti til hádegis ef ekki lengur! Morgunverður er framreiddur frá kl. 07:00 til kl. 10:00 alla daga.
- Kaffihúsa kósíheit: besta kaffið í bænum - rjúkandi bolli og með því er tilvalið þegar þú snýrt til baka úr ævintýrum dagsins.
- Kvöldverðarstemning: Hér er hægt er að ná sér niður eftir skemmilegan dag. Matseðillinn er ferskur, fljótlegur og hagkvæmur.
Slipp Terían býður upp á ferskar og fljótlegar veitingar sem þú getur gripið með þér - en endilega fáðu þér sæti og njóttu. Það er opið allan sólahringinn og við sjáum til til þess að þú fáir alltaf það ferskasta sem er í boði í bænum hverju sinni. Fáðu þér rjúkandi heitt kaffi á meðan þú vafrar á netinu í leit að næsta ævintýri.








