Kort og staðsetning Icelandair Hótel Reykjavík Marina
Icelandair Hótel Reykjavík Marina er staðsett við Reykjavíkurhöfn, nánar tiltekið við Slippinn í Reykjavík. Slippurinn er frábær staðsetning fyrir hótel, steinsnar frá iðandi mannlífi miðborgarinnar á einum besta útsýnisstað Reykjavíkur. Sú uppbygging ferðaþjónustu, veitingastaða og markaða sem átt hefur sér stað á undanförnum misserum við höfnina kallar beinlínis á nýjan valkost í gistingu á svæðinu. Lögð verður áhersla á hótel með nútímalegu ívafi í hönnun og rekstri.


