Við bjóðum velkomin nýjan fjölskyldumeðlim Icelandair Hótel Reykjavík Marina. Erum nú þegar farin að taka við bókunum.
Icelandair Hótel Reykjavík Marina
Icelandair Hótel Reykjavík Marina opnar 19. apríl 2012
Þetta glæsilega hótel er á fjórum hæðum og mun hýsa 108 glæsileg hótelherbergi við höfnina í Reykjavík. Við kynnum skemmtilega nýjung, Slipp Teríuna en þar er opið allann sólarhringinn og boðið er upp á ferskar og fljótlegar veitingar sem þú getur gripið með þér en endilega fáðu þér sæti og njóttu ef þú átt stund aflögu. Á Kaffi Slipp er framreiddur girnilegur morgunmatur sem veitir þér orku að minnsta kosti til hádegis ef ekki lengur - um hádegisbil og frameftir kvöldi verður boðið uppá óhefðbundna fundaraðstöðu á þessum stað. Á Slipp bar er notalegt að setjast niður einn eða í góðum félagsskap með kollu og njóta fjölbreyttra viðburða sem haldnir eru reglulega í tengslum við það sem er að gerast í Reykjavík hverju sinni. Komdu til okkar í Slipp bíó þar sem við sýnum úrval kvikmynda og bjóðum uppá nýstárlega fyrirlestraraðstöðu. Þú mátt búast við fjörugu en notalegu andrúmslofti með alþjóðlegu ívafi.
Erlendir ferðamenn geta hitt og samglaðst með heimamönnum á skemmtilegum stað, þar sem fjölbreytileiki og nýjungar í þjónustu og afþreyingu verða allsráðandi. Áhersla verður lögð á lifandi og skapandi umhverfi, sem veitir ferðamönnum innsýn í mannlíf Reykjavíkur og það helsta sem þar er á döfinni hverju sinni.
Slippurinn er frábær staðsetning fyrir hótel, steinsnar frá iðandi mannlífi miðborgarinnar á einum besta útsýnisstað Reykjavíkur. Sú uppbygging ferðaþjónustu, veitingastaða og markaða sem átt hefur sér stað á undanförnum misserum við höfnina kallar beinlínis á nýjan valkost í gistingu á svæðinu. Lögð verður áhersla á hótel með nútímalegu ívafi í hönnun og rekstri.
Það er mikill akkur fyrir hafnarsvæðið að sú uppbygging sem þar hefur orðið dafni og vaxi enn frekar og að hafnarsvæðið nái að sameinast kjarna miðbæjarins og mynda þannig stærra og öflugra þjónustusvæði meðal annars fyrir ferðamenn sem sækja borgina heim.
- Icelandair Hótel Reykjavík Marina opnar 19. apríl 2012
- Fjögurra stjörnu hótel í hjarta Reykjavíkur
- Slipp Terían
- 108 glæsileg herbergi
- Slipp Bar
- 74 Standard herbergi
- Kaffi Slippur
- Tvö Stúdíó 4 herbergi
- Slipp Bíó
- Þrjú Stúdíó 6 herbergi
- Líkamsræktaraðstaða
- 27 Ris-herbergi sér svalir
- Óhefðbundin fundaraðstaða
- 2 glæsilegar svítur
- Við Reykjavíkurhöfn
- Þráðlaust Internet (gegn vægu gjaldi)
- Gjafavöru og upplýsingamiðstöð
- Aðgengi fyrir fatlaða
- Sækja um laus störf
- Miðbær Reykjavíkur 0 km







