Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Kort og staðsetning Icelandair Hótel Klausturs

Icelandair Hótel Klaustur er staðsett á Kirkjubæjarklaustri, mitt á milli Mýrdalsjökuls og Vatnajökuls sem er stærsti jökull Evrópu. Landslagið í kringum hótelið einkennist af fjöllum, vatni og grónun grundum. Mikið er um skipulagðar ferðir með leiðsögumanni auk þess stutt er í Þjóðgarðinn í Skaftafelli og á Breiðamerkursand. Þessi friðsæli staður er  nokkuð langt frá Reykjavík og er því hægt að einbeita sér að fallegri náttúru suðausturlands. 

Hvernig á að komast

  • Rúta - Hægt er að taka rútu frá Umferðarmiðstöðinni, nálgast má áætlun hér
  • Einkabíl / Bílaleigubíl – Við mælum með því að þú hafir kort eða GPS tæki meðferðis þegar ferðast er til Kirkjubæjaklausturs, nálgast má GPS hnit á forsíðu hótelsins. (GPS hnit: 63°47'18.05"N, 18°3'12.39"W)


Skrá sig inn og út af hótelinu

Starfsfólk okkar er tilbúð að þjóna þér um leið og þú kemur.  Vinsamlegast hafið samband við okkur daginn fyrir komu ef þið þurfið að skrá ykkur inn á hótel fyrir þann tíma.

  • Hægt er að skrá sig inn á hótelið eftir kl. 14:00
  • Gestir þurfa að skrá sig út af hótelinu fyrir kl. 12:00 á hádegi á brottfarardegi
loading