Bókaðu núna og sparaðu!
Icelandair Hótel Klaustur - mitt á milli tveggja jökla
Verið velkomin á Suðausturland
Icelandair Hótel Klaustur er staðsett milli tveggja jökla á Suðausturlandi, heitasta svæði landsins. Á Klaustri er náttúrufegurð mikil og margt að sjá og gera á svæðinu. Í boði eru fjölmargar skipulagðar ferðir með leiðsögumanni auk þess sem stutt er í Þjóðgarðinn í Skaftafelli.
Icelandair Hótel Klaustur er þriggja stjörnu hótel á yndislegum stað. Í boði er úrval glæsilegra herbergja þar sem lagt er upp úr gæðum og þægindum. Á hótelinu er notalegur bar og frábært veitingahús, þar sem boðið eru upp á veislu fyrir bragðlaukana.
Icelandair Hótel Klaustur er staðsett á Kirkjubæjarklaustri en þar eru margar náttúruperlur og sögustaðir. Þú getur einnig notið þess að skreppa í sund eða á golfvöllinn sem er aðeins í 5 km fjarlægð.
Sveinn Hreiðar Jensson tók við hótelstjórastarfi á Klaustri á haustdögum 2011. Hann hefur áralanga reynslu úr hótel og veitingabransanum eða allt frá árinu 1998 og hefur þá bæði unnið sem yfirþjónn og veitingastjóri í Reykjavík og á landsbyggðinni. Fyrir nokkrum misserum lá leið hans í hótelstjóraskólann í Sviss þar sem hann útskrifaðist árið 2011.
Hestamennskan er hótelstjóranum kær og er það ekki bara út af tengingu við náttúruna og ferðalögum sem henni fylgir heldur er þetta kjörinn vettvangur til þess að slaka á eftir annasaman dag. Göngur og réttir eru einnig ómissandi hefð á haustin og væri það alveg mögulegt að koma því við að Sveinn bjóði gestum hótelsins að kynna sér þennan árlega viðburð í sinni heimasveit.
Sveinn ólst upp á bóndabænum Hátúnum í Skaftárhreppi rétt utan við Klaustur og í uppeldinu fékk hann að heyra fjöldan allan af sögum um drauga og álfa og minnist þess að það sé hægt að finna sögu á bak við hverja þúfu á svæðinu. Að hans mati eru Lakagígar og ströndin á Klaustri best geymdu leyndarmálin á svæðinu. Fjallabaksleið syðri er einn af uppáhaldsstöðum Sveins á Íslandi enda er náttúran stórbrotin.
Með nýjum hótelstjóra koma nýjar áherslur í rekstrinum t.d verður lögð meiri áhersla á grænar lausnir ásamt því að nýting á afurðum úr heimabyggð mun verða í hávegum höfð á matseðlinum á veitingastaðnum en nú þegar má finna m.a finna hina landsfrægu klausturbleikju og rófur.
- Þriggja stjörnu hótel
- 57 herbergi
- Glæsilegur veitingastaður
- Notalegur bar
- Þráðlaust Internet (gegn vægu gjaldi)
- Stórt bílastæði er fyrir utan hótelið
- 9 holu golfvöllur á Efri Vík
- Örstutt í sundlaug
- Stutt í Þjóðgarðinn í Skaftafelli
- Stutt í Vatnajökulsþjóðgarð
- Fjaðrárgljúfur í nokkurra km fjarlægð
- Reykjavík 250 km
- Jökulsarlón 120 km
- Höfn í Hornarfirdi 200 km
- Þingvellir 245 km
- Vík í Mýrdal 70 km
- Skaftafell 65 km
Afþreying

Hægt er að skreppa í Jökulsárlón eða jeppaferðir t.d niður á strönd og fjórhjólaferðir. Í nóvember ætti enginn að láta villibráðina fram hjá sér fara og jólahlaðborðið er alltaf á sínum stað. Ummerki eftir eldgos undanfarinna missera er einnig áhugavert að skoða í gönguferð um svæðið. Frekari upplýsingar um afþreyingu á svæðinu má finna á www.south.is
Á Icelandair Hótel Klaustri er mikið lagt upp úr gæðum og þægindum. Á hótelinu er notalegur bar og frábært veitingahús, þar sem boðið eru upp á veislu fyrir bragðlaukana þar sem hráefni úr héraðinu er nýtt þegar hægt er t.d hin rómaða Klausturbleikja.






