Veitingastaðurinn VOCAL á Icelandair hótel í Keflavík
VOCAL - Fyrsta flokks veitingastaður
Á Icelandair Hótel í Keflavík er VOCAL, stórglæsilegur og fágaður fyrsta flokks veitingastaður sem býður upp á framúrskarandi þjónustu og glæsilegan matseðil. Meistarakokkar staðarins leggja ríka áherslu á ferskt íslenskt hráefni. Í boði er úrval litríkra rétta og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér er allt sem þarf fyrir notalega kvöldstund eða hressandi hádegisverð.
- Kaffihús er staðsett á jarðhæðinni þar sem hægt er að fá sér drykk og létta rétti allan daginn, boðið er upp á a la carte matseðil á kvöldin.
- Morgunverður er borin fram alla morgna en sérstakt tillit er tekið til þeirra sem eiga flug snemma að morgni.
- Til viðbótar við veitingastaðinn og kaffihúsið er nýtískulegur bar á jarðhæðinni, þar sem hægt er að slaka á og njóta þess að vera til.
Opnunartími:
- Morgunverður frá kl. 05.00 - 10.00
- Kaffihús frá kl. 05.00 - 18.00
- Bar frá kl. 19.00 - 01.00
Nánari upplýsingar í síma 421 5222 eða tölvupóst keflavik@icehotels.is








