Kort og staðsetning á Icelandair Hótel í Keflavík
Icelandair Hótel í Keflavík er staðsett í hjarta Reykjanesbæjar sem er heillandi sjávarþorp og aðeins tekur um fimm mínútur að aka frá Alþjóðaflugvellinum í Keflavík. Hið vinsæla Bláa Lón er í um 15 -20 mínútna fjarlægð með bíl og það tekur aðeins um 40 mínútur að aka til Reykjavíkur. Staðseting hótelsins er góð og því stutt er í alla þjónustu frá hótelinu.
Hvernig á að komast á Icelandair Hótel í Keflavík?
Þar sem við erum staðsett svo nálægt Keflavíkurflugvelli er auðvelt að komast til okkar.
Leigubíl – Hægt er að taka leigubíl á flugvellinum allan sólahringinn.
Einkabíl/bílaleigubíl – Við mælum með því að þú hafir kort eða GPS tæki (GPS hnit: 64° 0,024'N, 22° 32,979'W) meðferðis.
Við sjáum svo um að koma þér upp á flugvöll svo þú getir farið áhyggjulaus í flug.


