Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Herbergi á Icelandair Hótel í Keflavík

Þú getur valið úr 60 herbergjum, 39 standard, 18 deluxe og 1 junior svíta, á okkar glæsilega fjögurra stjörnu Icelandair Hóteli í Keflavík.
Auk hefbundins búnaðar eru öll herbergin með gervihnattasjónvarpi, síma, mínibar, hárblásara og baðherbergi. Sem sagt allt til alls og þú getur tengst umheiminum þegar þú vilt, en þráðlaust net er aðgengilegt í öllum herbergjum.

  • Standard herbergi
    Herbergin eru rúmgóð og björt, öll parketlögð og búin þeim þægindum sem þú mátt búast við á fjögurra stjörnu hóteli.
    Val er um tvíbreitt rúm eða tvö rúm, sjónvarp, sími, þráðlaust internet, buxnapressa eða strauborð og straujárn, minibar, kaffi og te -sett,  hárblásara. Baðherbergin eru ýmist með baðkari eða sturtu.
  • Deluxe herbergi
    Deluxe herbergin eru glæsileg og fallega innréttuð með glæsilegum leðurstólum og stofuborði. Herbergin eru rúmgóð og björt með parketlögðu gólfi og 26" LCD flatskjá.
    Val er um tvö rúm eða tvíbreitt rúm „Queen size“, setustofa, 26“LCD flatskjár, greiðslusjónvarp, sími, baðsloppar og inniskór, þráðlaust net, kaffi og te sett. Deluxe herbergin eru með glæsilegri sturtu og hárþurrku.
  • Junior Svíta
    Stór og björt tveggja herbergja svíta, með parket á gólfum. Stofan er glæsileg og vel útbúin glæsilegu sófasetti og flatskjá. Tvö baðherbergi eru í svítunni, annað með baði og hitt með sturtu. Sem sagt allt til alls og þú getur tengst umheiminum þegar þú vilt, en þráðlaust net er aðgengilegt í öllum herbergjum.
    Tvíbreitt rúm „Queen size“, setustofa, 26“LCD flatskjár, gervihnattasjónvarp, sími, buxnapressa, öryggishólf, kælisápur, baðsloppar og inniskór, þráðlaust net, minibar, kaffi og te sett, hárþurrka.
loading