Að skipuleggja ráðstefnur eða fundi er auðvelt á Icelandair Hótel í Keflavík. Hótelið er frábærlega staðsett um fimm mínútur frá alþjóðaflugvellinum í Keflavík. Icelandair Hótel í Keflavík er því ákjósanlegur staður fyrir „Mid-Atlantic“ fund þar sem gestir frá Evrópu og Norður Ameríku hittast á miðri leið.
Þrír sérsniðnir fundarsalir bjóða upp á glæsilega fundaraðstöðu fyrir 15 til 60 manns. Við getum aðstoðað þig við að skipuleggja viðburðinn og bjóðum upp á alhliða þjónustu til þess að halda árangusríka fundi eða ráðstefnur.
Veisluþjónusta er á staðnum auk sérhæfðra tæknimanna sem eru reiðubúnir að aðstoða þig, þannig að þú þarft ekki að hafa áhyggjur. Salirnir eru útbúnir öllum þeim tækjum og aðbúnaði sem góðir fundarsalir þurfa ásamt þráðlausu neti og prentara- og fjölföldunarþjónustu.
Dagsfundarpakkar
Hálfur dagur
Kaffi, te og ávaxtasafi
Morgun- eða síðdegishressing
Heill dagur
Kaffi, te og ávaxtasafi
Morgunhressing
Tveggja rétta matseðill
Síðdegishressing
Verð
Hálfur dagur kr. 2.200,- á mann
Hálfur dagur kr. 5.700,- á mann með tveggja rétta matseðli
Heill dagur kr. 3.100,- á mann
Heill dagur kr. 6.400,- á mann með tveggja rétta matseðli
Gildir fyrir 10 manns eða fleiri
Frekari upplýsingar má nálgast á netfanginu: conference@icehotels.is eða í síma 444 4040