Bókaðu snemma - ódýr hótelgisting á Icelandair Hóteli í Keflavík

Bókaðu núna og sparaðu!

Hótelgisting fyrir þig og bílinn þinn á Icelandair Hótelinu í Keflavík

Ertu að fara erlendis? Kíktu við hjá okkur á Icelandair Hótelinu í Keflavík

Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Icelandair Hótel í Keflavík

Icelandair Hótel í Keflavík (áður Flughótel) er í miðbæ Keflavíkur á hinu fallega Reykjanesi. Icelandair Hótel í Keflavík er fjögurra stjörnu hótel sem er stutt frá Bláa Lóninu, hinu glæsilega Víkingasafni og í fimm mínútna fjarlægð frá alþjóðaflugvellinum í Keflavík.

Umhverfið á Reykjanesi er magnað og gaman að skoða það á fjölmörgum skemmtilegum gönguleiðum. Reykjavík er einnig í kallfæri svo að þú getur alltaf skroppið til höfuðborgarinnar. Það er því engin hætta á því að þér leiðist á meðan þú dvelur hjá okkur.

Miklar breytingar voru gerðar á hótelinu árið 2007 og er Icelandair Hótel í Keflavík nú innréttað í nútímalegum stíl. En það er eins og hótelstjóranum á Icelandair Hótel í Keflavík, Bergþóru Sigurjónsdóttur, finnst að hótel eigi að vera. Bergþóra er með 16 ára reynslu úr hótelbransanum en hefur verið hótelstjóri á Icelandair Hótel í Keflavík frá því árið 2000. Helsta áhugamál hennar er að ferðast innanlands allan ársins hring hvort sem er á fjöll, í sumarbústað eða fellihýsi og þá helst í faðmi fjölskyldunnar.

Uppáhaldsstaðurinn hennar og að hennar mati best geymda leyndarmál Reykjaness er Reykjanesviti sem er elsti og stærsti viti landsins. Bergþóra hefur frá því hún man eftir sér farið margsinnis út í vitann en þar ríkir mikil kyrrð og fegurðin er stórkostleg.  

Bergþóra býður ykkur velkomin á Icelandair Hótel í Keflavík og vonar að þið njótið dvalarinnar!

  • Icelandair Hótel í Keflavík hét áður Flughótel
  • Fjögurra stjörnu gistiaðstaða
  • Hinn vinsæli veitingastaður VOCAL
  • Bar og kaffihús
  • 62 herbergi - Standard / Deluxe / Svíta
  • Frítt í upphitaðan bílakjallara
  • Frítt í gufubað og líkamsræktarherbergi
  • Þráðlaust Internet (gegn vægu gjaldi)
  • Listagallerí
  • Banki
  • Bókasafn
  • 2 mínútna gangur að sjónum
  • Í hjarta Reykjanesbæjar
  • 15 mínútna akstur í Bláa Lónið
  • Stutt er í bari, skemmti- og veitingastaðii
  • Frír akstur á Keflavíkurflugvöll fyrir hótelgesti. Ferðir á 30 mín fresti á milli kl: 5.00 og 8.00 á hverjum morgni og ein ferð kl: 12.00 á hádegi.
  • Þeir sem eru að koma með morgunflugi til Íslands geta tékkað sig inn á hótelið frá 08.00 án aukakostnaðar - nauðsynlegt er að staðfesta við móttöku daginn fyrir komu.
  • Fjarlægð frá Reykjanesbæ
  • Bláa Lónið 16 km
  • Keflavíkurflugvöllur 3 km
  • Golfvöllur 5 km
  • Grindavík 20 km
  • Reykjavík 54 km

Afþreying

VETRARÆVINTÝRI Í KEFLAVÍK
Keflavík er skemmtilegur bær heima að sækja. Hér er ekki bara stutt í Bláa Lónið heldur eru möguleikar til afþreyingar fjölmargir allt árið um kring.

Hvort sem þú ert að leita af listum og menningu, fjórhjólaferð eða alsherjar slökun, þá getið þið verið viss um að finna eitthvað við ykkar hæfi. Öll fjölskyldan nýtur sín í Keflavík og má þá t.d nefna Skessudaga sem haldnir eru í byrjun aðventu þegar kveikt er á jólaskreytingum og Skessan í hellinum opnar hátíðina. Frekari upplýsingar um afþreyingu má finna á www.visitreykjanes.is    

Icelandair Hotel í Keflavík er staðsett í miðbæ Keflavíkur. Miklar breytingar voru gerðar á hótelinu árið 2007 og er það nú innréttað í nútímalegum stíl. VOCAL er stórglæsilegur fyrsta flokks veitingastaður á fyrstu hæð hótelsins. Þar er glæsilegur matseðill þar sem áherslan er lögð á íslenskt hráefni. 

Viðburðir

FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Á LJÓSANÓTT
Ljósanótt á Icelandair Hótel í Keflavík daganna 1.-4. september minnir okkur á hina fjölbreytilegu flóru menningar og lista.

Er þetta í 12 sinn sem Ljósanótt er haldin í Reykjanesbæ og hefur fjöldi fólks komið saman undanfarin ár til að njóta menningar, lista ,veitinga, njóta lífsins og  sýna sig og sjá aðra.

  • Sjá upplýsingar um dagskrá Icelandair Hótel í Keflavík á Ljósanótt hér
  • Sjá upplýsingar um almenna dagskrá Ljósanætur hér
loading