Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Hótelgisting í Reykjavík, 8 hótel á Íslandi | Icelandair Hótel

Reykjavik Natura

Icelandair Hótel Reykjavík Natura

Icelandair Hótel Reykjavík Natura (áður Hótel Loftleiðir) er nýlega endurbætt 220 herbergja, fjögurra stjörnu hótel, staðsett í fallegu umhverfi Öskjuhlíðar og baðstrandarinnar í Nauthólsvík. Nafn hótelsins er innblásið af náttúrufegurð umhverfisins. Þar er að finna frábærar göngu-/hjólaleiðir ásamt fjölbreyttu dýralífi. Aðeins er um 20 mínútna gangur inn í miðbæ Reykjavíkur en fyrir þá sem vilja spara sporin bjóðum við fríar ferðir með hótelskutlu til og frá miðbænum fimm sinnum á dag og í verslunarmiðstöðina Kringluna en það þarf að bóka sérstaklega í móttökunni.

HORFÐU Á ICELANDAIR HÓTEL REYKJAVÍK NATURA VIDEO HÉR

Á Icelandair Hótel Reykjavík Natura er boðið upp á alla þá þjónustu sem vænta má á fyrsta flokks hóteli. Veitingastaðurinn Satt býður upp á staðbundið, ferskt hráefni sem matreitt er af innlifun. Satt skiptist í Eldhús (léttir réttir) og Betri stofu, sem er fínni veitingastaður, auk þess sem þar er glæsilegur bar og kaffihús. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er eina hótelið í Reykjavík sem býður upp á sundlaug innanhúss og er aðgangur að henni frír fyrir gesti hótelsins. Sóley Natura Spa er ný heilsulind staðsett á jarðhæð hótelsins en þar er í boði alls konar unaðslegt dekur í himnesku umhverfi.

Í anddyri hótelsins er gjafavöruverslun og upplýsingamiðstöð (ITA) auk fjölda veislu- og ráðstefnusala. Þráðlaus nettenging er í boði gegn vægu gjaldi. Gestir sem dvelja á Deluxe, Art og Poet herbergjum fá aðgang að einstaklega fallegri setustofu á fjórðu hæð hótelsins þar sem hægt er að slappa af og njóta útsýnis auk þess sem boðið er upp á heita og kalda drykki og aðgang að tölvu.

 

Reykjavík Marina

Velkomin á Icelandair Hótel Reykjavík Marina

Icelandair Hótel Reykjavík Marina

Þetta nýstárlega og litríka hótel við Reykjavíkurhöfn er á fjórum hæðum og mun hýsa 108 glæsileg hótelherbergi, óhefðbundna fundaraðstöðu, kokteilbar, veitingasölu og kaffihús á Slippbarnum, líkamsræktaraðstöðu og bíósal. Hótelið er án efa það eina í heiminum þar sem hægt verður nánast að snertaskip í slipp, en aðalinngangurinn er gengt Slippnum norðanmegin við húsið. Húsgögn og innréttingar eru sérsmíðaðar hér heima á Íslandi en hönnunin er  nútímaleg í bland við eldri muni úr nærumhverfi Slippsins.

Slippbarinn er staðsettur í alrými hótelsins á jarðhæð og verður veglegur vín- og kokteillisti á boðstólnum sem mun án efna bræða hug og hjarta vínáhugamanna. Hér er notalegt að setjast niður einn eða í góðum félagsskap með drykk í hönd og njóta fjölbreyttra viðburða sem haldnir eru reglulega í tengslum við það sem er að gerast í Reykjavík hverju sinni. Girnilegur matseðill er í boði allan daginn og langt fram á kvöld. Á Kaffi Slipp er framreiddur girnilegur morgunverður, kaffihúsastemning tekur við yfir daginn og á kvöldin er notaleg stemning þar sem léttur og fjölbreyttur matseðill er í boði, einnig er í boði fundaraðstaða á staðnum frá hádegi. Við kynnum skemmtilega nýjung, Slipp Teríuna en þar er opið allan sólarhringinn og boðið er upp á ferskar og fljótlegar veitingar sem þú getur gripið með þér en endilega fáðu þér sæti og njóttu ef þú átt stund aflögu. Komdu til okkar í Slipp bíó þar sem við sýnum úrval kvikmynda og bjóðum uppá nýstárlega fyrirlestraraðstöðu. Þú mátt búast við fjörugu en notalegu andrúmslofti með alþjóðlegu ívafi.   

Erlendir ferðamenn geta hitt og samglaðst með heimamönnum á skemmtilegum stað, þar sem fjölbreytileiki og nýjungar í þjónustu og afþreyingu verða allsráðandi. Áhersla verður lögð á lifandi og skapandi umhverfi, sem veitir ferðamönnum innsýn í mannlíf Reykjavíkur og það helsta sem þar er á döfinni hverju sinni.

Akureyri

Icelandair Hótel Akureyri

Á besta stað í höfuðstað Norðurlands

Icelandair Hótel Akureyri er nýtt hótel sem var opnað á Akureyri 10. júní 2011. Hótelið mun bjóða upp á alls 100 herbergi, 63 herbergi voru tilbúin þegar hótelið opnaði og önnur 37 verða tilbúin þann 1. júní 2012.

Á hótelinu er jafnframt glæsilegur veitingastaður og bar sem og upphituð skíðageymsla með sérstökum inngangi fyrir vetrargesti en jafnframt fá gestir hótelsins 10% afslátt af skíðapassa í Hlíðarfjalli og geta keypt hann í gestamóttöku. Skíðarútan stoppar fyrir utan Icelandair Hótel Akureyri en hér má finna áætlun skíðarútunnar í Hlíðarfjall frá Icelandair Hótel Akureyri. Bakvið hótelbygginguna er fallegur hótelgarður með stórri verönd þar sem notalegt er að setjast niður og slaka á eftir góðan dag.

Herad

Icelandair Hótel Hérað

Náttúrufegurð og gott veðurfar á Egilsstöðum

Verið velkomin á Austurland

Icelandair Hótel Hérað er spennandi staður heim að sækja allt árið um kring. Veitingastaður hótelsins er fyrsta flokks og er mikil áhersla lögð á að bjóða upp á gott hráefni úr nágrenninu t.d hreindýr, villibráð og gæs. Á hverju hausti fær hótelstjórinn aðstoð fagmanna við að tína sveppi í skóginum, t.d lerkisveppi. Einnig er boðið uppá heimagerðra bláberja og -krækiberjasultu ásamt sírópi úr hrúta, -kræki og bláberjum sem er auðvitað tilvalið út á salatið. Brunchinn á sunnudögum er sá girnilegasti í bænum og gestirnir fara alltaf saddir og sáttir heim.

Hótelið er á þremur hæðum en það var stækkað um helming árið 2004 sem gefur okkur kost á að bjóða upp á ráðstefnuaðstöðu með fullkomnum fundarbúnaði fyrir allt að 120 manns. Tilvalið er að njóta unaðssemda lífsins á fyrsta flokks veitingastað hótelsins, þar sem m.a. er borin fram hreindýrasteik og leggja leið sína á barinn sem státar af svölum fyrir sólarlagsunnendur. Fuglaskoðun, veiði, djúpir firðir auk skemmtilegra gönguleiða um fjöllin í kring er allt aðgengilegt frá hótelinu.

Klaustur

Icelandair Hótel Klaustur

Verið velkomin á Suðausturland

Icelandair Hótel Klaustur er staðsett milli tveggja jökla á Suðausturlandi, heitasta svæði landsins. Á Klaustri er náttúrufegurð mikil og margt að sjá og gera á svæðinu. Í boði eru fjölmargar skipulagðar ferðir með leiðsögumanni auk þess sem stutt er í Þjóðgarðinn í Skaftafelli.

Icelandair Hótel Klaustur er þriggja stjörnu hótel á yndislegum stað. Í boði er úrval glæsilegra herbergja þar sem lagt er upp úr gæðum og þægindum. Á hótelinu er notalegur bar og frábært veitingahús, þar sem boðið eru upp á veislu fyrir bragðlaukana.

Icelandair Hótel Klaustur er staðsett á Kirkjubæjarklaustri en þar eru margar náttúruperlur og sögustaðir. Þú getur einnig notið þess að skreppa í sund eða á golfvöllinn sem er aðeins í 5 km fjarlægð.

Hamar

Icelandair Hótel Hamar - glæsilegt golfhótel á Vesturlandi

Icelandair Hótel Hamar er nýlegt og glæsilegt hótel á Vesturlandi á rólegum stað við golfvöllinn Hamar í þjóðleið rétt utan við Borgarnes (ca. 5 mín. akstur frá Borgarnesi). Hér er hægt að njóta kyrrðarinnar í sveitinni en öll þjónusta er þó innan seilingar. Útsýnið yfir Borgarfjörð er stórbrotið og veitingastaður hótelsins hefur getið sér gott orð fyrir frábæran mat og faglega þjónustu. Öll hótelherbergi eru með eigin útgangi út í hótelgarðinn og smá verönd. Herbergin eru vel útbúin og má þar nefna hita í gólfum sem heldur hita á gestum í hvaða veðri sem er.

Fáðu blóðið á hreyfingu t.d. með göngu á Hafnarfjall eða í golfi á einum besta velli utan Reykjavíkur. Eftir viðburðaríkan dag geturðu slakað á í einum af heitu pottunum okkar í hótelgarðinum.

KEFLAVIK

Icelandair Hótel í Keflavík

Icelandair Hótel í Keflavík (áður Flughótel) er í miðbæ Keflavíkur á hinu fallega Reykjanesi. Icelandair Hótel í Keflavík er fjögurra stjörnu hótel sem er stutt frá Bláa Lóninu, hinu glæsilega Víkingasafni og í fimm mínútna fjarlægð frá alþjóðaflugvellinum í Keflavík.

Umhverfið á Reykjanesi er magnað og gaman að skoða það á fjölmörgum skemmtilegum gönguleiðum. Reykjavík er einnig í kallfæri svo að þú getur alltaf skroppið til höfuðborgarinnar. Það er því engin hætta á því að þér leiðist á meðan þú dvelur hjá okkur.

Fludir

Icelandair Hótel Flúðir - Gullni hringurinn allt um kring

Verið velkomin á Suðurland

Icelandair Hótel Flúðir er á Suðurlandi í aðeins klukkutíma fjarlægð frá höfuðborginni. Hótelið býður upp á glæsilega þriggja stjörnu gistiaðstöðu á einni hæð.

Eftir langan og viðburðaríkan dag er kjörið að dvelja á Icelandair Hótel Flúðum og taka lífinu með ró. Framúrskarandi veitingastaður ásamt flottum bar í afslöppuðu umhverfi er hinn fullkomni staður til að njóta kvöldsins. Á veitingastaðnum er stórbrotið útsýni yfir fallega sveitina.

Á Flúðum getur þú valið um að liggja í bleyti í heita pottinum eða njóta fegurðar íslenskrar náttúru. Þekktustu staðirnir í nágrenni Flúða eru oftast kallaðir Gullni hringurinn (Golden Circle) og er þá átt við þjóðgarðinn á Þingvöllum og svo Gullfoss og hverasvæðið Geysi.

Njóttu þess að fara í laxveiði, skoða gróðurhúsin, fara á hestbak eða í flúðasiglingu niður Hvítá, þetta er aðeins brot af því sem þú hefur úr að velja til þess að gera dvöl þína sem ánægjulegasta.

loading