Veitingastaður á Icelandair Hótel Héraði
Áhersla lögð á gæði og þjónustu á Icelandair Hótel Héraði.
Á Icelandair Hótel Héraði er fallegur veitingastaður sem rúmar allt að 100 manns í sæti. Matreiðslumeistarar okkar sérhæfa sig í að matreiða úr hráefni sem færst úr nærumhverfi hótelsins t.d með því að nýta hreindýrakjöt, lambakjöt og fisk.
Alla morgna er boðið upp á glæsilegt morgunverðarhlaðborð. Herbergisþjónusta er í boði fyrir þá sem byrja daginn fyrr. Girnilegur Brunch alla sunnudaga. Vinsælt er að enda viðburðarríkan dag á útsýnissvölum barsins með góðan drykk í hönd á meðan horft er yfir héraðið baða sig í miðnætursólinni.
Opnunartími
- Bar: 11.30 - 24.00
- Veitingarstaður: 11.30 - 21.00
- Morgunverður: 07.00 - 10.00
- Brunch: 11.30 - 14.00 á sunnudögum
Vinsamlegast hafið samband við móttökuna ef panta á herbergisþjónustu.










