Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Kort og staðsetning á Icelandair Hótel Héraði

Fljótsdalshérað er fjölmennasta sveitarfélagið á Austurlandi með um 3500 íbúa. Þar af búa ríflega 2100 manns í þéttbýlinu á Egilsstöðum og í Fellabæ sem er stærsti þéttbýliskjarni á Austurlandi. Fljótsdalshérað er rómað fyrir náttúrufegurð og gott veðurfar, sem minnir oft á loftslag á meginlandi Evrópu. Skóglendi einkennir svæðið og setur mikinn svip á umhverfið og mannlífið. Fossar, vötn og ár setja svip á landið. Þar eru fjölmargir staðir vel fallnir til útivistar og margar skemmtilegar gönguleiðir hvort sem er í skógi eða fjöllum.

Egilsstaðarflugvöllur er stutt frá og tekur um 60 mínútur að ferðast með flugi frá Reykjavík en landleiðin er í um 655 km löng.

Hvernig á að komast á Icelandair hótel Hérað

  • Rúta - Hægt er að taka rútu frá Umferðarmiðstöðinni, nálgast má áætlun hér
  • Einkabíl / Bílaleigubíl – Við mælum með því að þú hafir kort eða GPS tæki (GPS: 65°15'42.60"N, 14°24'20.70"W) meðferðis.
  • Flug - Um 60 mínutur tekur að fljúga til Egilstaða

Starfsfólk okkar er ávalt tilbúð að þjóna þér

    Hægt er að skrá sig inn á hótelið eftir kl. 14:00
    Gestir þurfa að skrá sig út af hótelinu fyrir kl. 12:00 á hádegi á brottfarardegi
     
Vinsamlegast hafið samband við okkur daginn fyrir komu ef þið þurfið að skrá ykkur inn á hótel fyrir þann tíma.

loading