Fundir á Icelandair Hótel Héraði
Glæsileg fundaraðstaða á Icelandair Hótel Héraði
Egilsstaðir er frábær kostur fyrir þá sem þurfa að funda eða halda ráðstefnur. Icelandair Hótel Hérað býður upp á margvíslega þjónustu fyrir ráðstefnuhaldara og er aðstaða öll eins og hún gerist best. Nýbúið er að taka í notkun glænýja ráðstefnuaðstöðu með fullkomnum fundarbúnaði fyrir allt að 120 manns. Á hótelinu eru 4 fundasalir, mjög vel búinn salur sem rúmar 60 - 100 manns, einnig skiptanlegir salir sem rúma frá 12 til 120 manns. Að sjálfsögðu er allur helsti tækjabúnaður til reiðu. Starfsfólkið er alltaf til staðar til að tryggja að þinghald og ráðstefnur gangi hnökralaust fyrir sig.
Salirnir henta einnig vel fyrir brúðkaup, fermingarveislur, starfsmannaskemmtanir, kynningar og ýmsa aðra viðburði.
Dagsfundarpakkar
Hálfur dagur
Kaffi, te og ávaxtasafi
Morgun- eða síðdegishressing
Heill dagur
Kaffi, te og ávaxtasafi
Morgunhressing
Tveggja rétta matseðill
Síðdegishressing
Verð
Hálfur dagur kr. 2.200,- á mann
Hálfur dagur kr. 5.700,- á mann með tveggja rétta matseðli
Heill dagur kr. 3.100,- á mann
Heill dagur kr. 6.400,- á mann með tveggja rétta matseðli
Gildir fyrir 10 manns eða fleiri
Frekari upplýsingar má nálgast á netfanginu: herad@icehotels.is eða í síma 471 1500



