Gisting og brunch á Icelandair Hótel Héraði

Helgartilboð í janúar, febrúar, mars og apríl 2012.

Bókaðu snemma - ódýr hótelgisting á Icelandair Hótel Héraði!

Bókaðu núna og sparaðu!

Vetrartilboð í miðri viku á Icelandair Hótel Héraði

Frábært verð á gistingu á virkum dögum á Icelandair Hótel Héraði

Skíðatilboð á Egilsstöðum

Frábært skíðatilboð á Icelandair Hótel Héraði

Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Icelandair Hótel Hérað

Náttúrufegurð og gott veðurfar á Egilsstöðum

Verið velkomin á Austurland

Icelandair Hótel Hérað er spennandi staður heim að sækja allt árið um kring. Veitingastaður hótelsins er fyrsta flokks og er mikil áhersla lögð á að bjóða upp á gott hráefni úr nágrenninu t.d hreindýr, villibráð og gæs. Á hverju hausti fær hótelstjórinn aðstoð fagmanna við að tína sveppi í skóginum, t.d lerkisveppi. Einnig er boðið uppá heimagerðra bláberja og -krækiberjasultu ásamt sírópi úr hrúta, -kræki og bláberjum sem er auðvitað tilvalið út á salatið. Brunchinn á sunnudögum er sá girnilegasti í bænum og gestirnir fara alltaf saddir og sáttir heim.

Hótelið er á þremur hæðum en það var stækkað um helming árið 2004 sem gefur okkur kost á að bjóða upp á ráðstefnuaðstöðu með fullkomnum fundarbúnaði fyrir allt að 120 manns. Tilvalið er að njóta unaðssemda lífsins á fyrsta flokks veitingastað hótelsins, þar sem m.a. er borin fram hreindýrasteik og leggja leið sína á barinn sem státar af svölum fyrir sólarlagsunnendur. Fuglaskoðun, veiði, djúpir firðir auk skemmtilegra gönguleiða um fjöllin í kring er allt aðgengilegt frá hótelinu.

Auður Ingólfsdóttir er hótelstjóri á Icelandair Hótel Héraði. Auður er með um 30 ára reynslu í ferðaþjónustu samanlagt en hefur verið við stjórnvölinn á Icelandair Hótel Héraði síðustu 11 árin. Auður leggur stund á skíði enda telur hún að flottustu skíðasvæðin sé að finna fyrir austan, Stafdalur og Oddskarð. Auður nefnir Mjóafjörð sem uppáhaldsstað í nágrenninu. Þar er mjög friðsælt enda búa þar aðeins 18 manns. Í Mjóafirði er mögulegt að lifa að mestu leyti á því sem náttúran gefur af sér. Þar á Auður lítinn bát með utanborðsmótor sem hún siglir út á sjó og veiðir sér stundum í matinn með sjóstönginni sinni.

Að hennar mati er þó fjallið Bjólfur í Seyðisfirði best geymda leyndarmál svæðisins. Á sínum tíma voru settir upp snjóflóðavarnargarðar í fjallinu sem hægt er að keyra upp að og útsýnið þaðan er þannig að manni finnst að hægt sé að horfa yfir allt landið.

Áhugamál Auðar eru fjölbreytt. Fyrst ber að nefna góðan mat en villibráðin er í uppáhaldi hjá henni ásamt framandi mat frá öðrum löndum. Hún leggur líka stund á útsaum og hannar þá eigin mynstur og saumar út í dúka og servíettur.

Auður hefur lagt sérstaka áherslu á bjóða upp á gott hráefni úr nágrenninu og nefnir hún sérstaklega villibráð, hreindýr og gæs. Á hverju hausti fær hún aðstoð fagmanna við að tína sveppi í skóginum, t.d lerkisveppi, sem síðan eru notaðir við matreiðslu á hótelinu. Einnig hefur Auður verið að bjóða upp á ferska bláberjasultu og krækiberjasultu og það nýjasta hjá henni er síróp úr hrútaberjum, krækiberjum og bláberjum sem er tilvalið út á salatið.     

Auður býður ykkur velkomin á Icelandair Hótel Hérað og vonar að þið njótið dvalarinnar.

  • Þriggja stjörnu hótel
  • 60 hótelherbergi
  • Fyrsta flokks veitingastaður
  • Bar með útsýnissvölum
  • Hráefni úr héraði t.d hreindýr
  • Þráðlaust Internet (gegn vægu gjaldi)
  • 24 stunda herbergisþjónusta
  • Brunch á sunnudögum
  • Frábær fundaraðstaða
  • Næg bílastæði fyrir utan hótelið
  • Sækja um laus störf
  • Vopnafjörður 133 km
  • Mývatn 165 km
  • Seyðisfjörður 27 km
  • Neskaupstaður 71 km
  • Höfn 247 km
  • Snæfell 99 km
  • Kárahnjúkar 115 km
  • Akureyri 269 km
  • Reykjavík 655 km

Afþreying

VETRARÆVINTÝRI Á EGILSSTÖÐUM
Austurland er spennandi staður heim að sækja yfir vetrartímann. Skíðaferð í austfirsku alpanna (Oddskarð) er ævintýri sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Hreindýr hafa alltaf gengið villt á Íslandi og hægt að sjá þeim bregða fyrir nálægt byggð á austurlandi yfir vetrartímann. Þau eru vel aðlöguð óblíðu umhverfi, þola mikinn kulda og geta fundið lykt af fæðu í gegnum tugi centimetra af snjó. Villibráðahlaðborðin eru svo ómissandi hluti af vetrinum fyrir austan og ætti ferðalangurinn að gera sér dagamun þegar ferðast er um svæðið í október og nóvember og fá sér villibráð. Nánair upplýsingar um afþreyingu má finna á www.east.is

Icelandair Hótel Hérað tekur vel á móti gestum allan ársins hring. Á hótelinu er hægt að slaka á eftir viðburðarríkan dag og fá sér drykk á hótelbarnum áður en farið er í kvöldmat á veitingastað hótelsins en þar er áhersla lögð á að nýta hráefni úr héraðinu.

NJÓTTU ÞESS AÐ VERA Í FRÍI Á EGILSSTÖÐUM
Frí með fjölskyldunni, betri helmingnum, vinahópnum eða vinnufélögunum! Það er nóg um að vera hjá okkur á Egilsstöðum.

Í fjölskylduferðinni er hlegið og leikið saman í skíðabrekkunum og í sundlauginni er slakað á í heitu pottunum á meðan börnin renna sér í rennibrautinni. Fjölskyldan gæti líka farið í gönguferð yfir Fljótið því það er alltaf spennandi að sjá hvort ormurinn lætur á sér kræla. Einnig er Fellsskógur með skemmtilegar gönguleiðir og leiksvæði fyrir börnin. Þegar komið er heim á hótel eftir annasaman dag og hungrið farið að segja til sín mælum við með vinsælasta réttinum á matseðlinum hjá bæði börnum og fullorðnum; grillaður hreindýraborgari, hann slær alltaf í gegn!  


Rómantíkin ræður líka ríkjum hjá okkur og mælum við með því að byrja daginn á því að skoða bæði Byggðasafnið í safnahúsinu og Hús handanna þar sem íslensk hönnun og handverk úr héraðinu er til sýnis og sölu. Ef að þið eruð á ferðinni í apríl þegar tíróla hátíðin er haldin er fátt rómantískara en að fara á skíði með betri helmingnum. Tíróla er hérað í Austurríki og til er ákveðin tegund af tónlist sem er nefnd tíróla og fær hún að hljóma um fjallstindanna á hátíðinni langt fram á nótt. Þegar rökkva tekur er hægt að fara að Laugafelli í náttúrulega heita laug og njóta norðurljósanna áður haldið er heim á hótel í gómsæta máltíð og drykk á barnum.

loading