Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Veitingastaður og bar á Icelandair Hótel Hamri

Á Icelandair Hótel Hamri er veitingasalur með fallegu útsýni yfir Borgarfjörðinn og fjöllin í suðri. Í matargerðinni er lögð áhersla á gæðahráefni úr heimasveit og er mikið af grænmeti ræktað á hótelinu. Víngerð er staðsett skammt frá hótelinu þar sem Reykja Vodka og snafsanir Opal og Topas eru framleiddir og eru vinsælir á hótelbarnum eftir mat. Að máltíð lokinni er tilvalið að setjast niður í ró og næði á barnum eða á veröndinni ef veður er gott.

Veitingastaðurinn býður upp á morgunverðarhlaðborð fyrir hótelgesti.

Opnunartími

  • Bar: 11.30 - 23.00
  • Veitingastaður: 18.30 - 21.00
  • Morgunverður: 07.30 - 10.00

Framúrskarandi þjónusta og notalegt umhverfi leyfa þér að njóta alls hins besta á veitingastað Hamars.

Veitingastaðurinn býður upp á dýrindis máltíðir úr fyrsta flokks hráefni allan ársins hring.

Frekari upplýsingar fást í síma 433 6600 eða á netfangið hamar@icehotels.is

loading