Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Kort og staðsetning á Icelandair Hótel Hamri

Icelandair Hótel Hamar stendur við þjóðveg 1. um það bil 4 km. norður af Borgarnesi á miðjum golfvellinum að Hamri. Hótelið er vel staðsett í einungis klukkustundar fjarlægð frá höfuðborginni.

Á Icelandair Hótel Hamri nýtur þú kyrrðar í sveitinni, en öll þjónusta er þó innan seilingar í Borgarnesi. Þar sem þú finnur verslanir, heilsugæslu, íþróttaaðstöðu, söfn og fjölbreytta menningu. Hrífandi landslag Borgarfjarðar lætur engan ósnortinn, stutt er til sjávar og jökla og er Snæfellsnes innan seilingar.

Icelandair Hótel Hamar er fullkominn staður til þess að njóta alls hins besta sem Vesturland hefur upp á að bjóða.

Hvernig á að komast á Icelandair Hótel Hamar
Rúta - Hægt er að taka rútu frá Umferðarmiðstöðinni
Einkabíl / Bílaleigubíl – Við mælum með því að þú hafir kort eða GPS tæki (GPS: 64°34'27.38"N, 21°52'44.46"W) meðferðis.

Skrá sig inn og út af hótelinu
Starfsfólk okkar er tilbúð að þjóna þér um leið og þú kemur.

  • Hægt er að skrá sig inn á hótelið eftir kl. 14:00
  • Gestir þurfa að skrá sig út af hótelinu fyrir kl. 12:00 á hádegi á brottfarardegi

 

 

loading