Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Herbergi á Icelandair Hótel Hamri

Herbergi með útsýni

Á hótelinu er 30 rúmgóð tveggja manna herbergi með baði og þar af eru fjögur sérstaklega innréttuð fyrir fatlaða. Öll herbergin eru á jarðhæð og hægt er að ganga beint út úr herberginu á sólpall eða á golfvöllinn. Öll herbergin eru með baðherbergi með sturtu. Við hótelið eru þrír heitir pottar þar sem gott er að láta þreytuna líða úr sér eftir skemmtilegan dag.

Herbergin okkar eru rúmgóð, björt og í léttum Skandinavískum stíl með hita í gólfi. Öll herbergin eru með sér baðherbergi með sturtu, hárþurrku, sjónvarpi, nettengingu, síma og kaffikönnu. Beint aðgengi út á sólpall með útsýni til fjalla eða út á golfvöll. Val um tví- eða einbreitt rúm.

loading