Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Fundir og ráðstefnur á Icelandair Hótel Hamri

Það er sannkallaður fundarfriður í Borgarfirðinum og einungis klukkustundar akstur úr höfuðborginni. Hótel Hamar hefur upp á tvo fundarsali að bjóða;  Stóra Hamar sem tekur allt að 40 manns og Litla Hamar sem tekur 8 manns. Einnig bjóðum við upp á veisluþjónustu fyrir allt að 100 manns. Framúrskarandi þjónusta, þægilegt umhverfi og glæsilegt útsýni er hluti af því sem fylgir fundarhöldum á Hótel Hamri.

Á Hótel Hamri er öll sú tækni í boði sem þarf til að halda góðan fund. Aðgangur að háhraða þráðlausu neti auk sjónvarps, DVD spilara, skjávarpa og fléttitöflu. Starfsfólk okkar sér svo til þess að allt fari fram eins og óskað er eftir.

Eftir langan vinnudag er svo gott að geta gleymt sér, slakað á á golfvellinum eða í heita pottinum.
 

 

Dagsfundarpakkar

Hálfur dagur

    Kaffi, te og ávaxtasafi
    Morgun- eða síðdegishressing

Heill dagur

    Kaffi, te og ávaxtasafi
    Morgunhressing
    Tveggja rétta matseðill
    Síðdegishressing

Verð

    Hálfur dagur kr. 2.200,- á mann
    Hálfur dagur kr. 5.700,- á mann með tveggja rétta matseðli
    Heill dagur kr. 3.100,- á mann
    Heill dagur kr. 6.400,- á mann með tveggja rétta matseðli

    Gildir fyrir 10 manns eða fleiri

Frekari upplýsingar má nálgast á netfanginu: conference@icehotels.is eða í síma 444 4040

loading