Bókaðu snemma - ódýr hótelgisting á Icelandair Hótel Hamri

Bókaðu núna og sparaðu!

Vetrartilboð á Icelandair Hótel Hamri

Fullkomin staðsetning fyrir vetrarfríið!

Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Icelandair Hótel Hamar - glæsilegt golfhótel á Vesturlandi

Icelandair Hótel Hamar er nýlegt og glæsilegt hótel á Vesturlandi á rólegum stað við golfvöllinn Hamar í þjóðleið rétt utan við Borgarnes (ca. 5 mín. akstur frá Borgarnesi). Hér er hægt að njóta kyrrðarinnar í sveitinni en öll þjónusta er þó innan seilingar. Útsýnið yfir Borgarfjörð er stórbrotið og veitingastaður hótelsins hefur getið sér gott orð fyrir frábæran mat og faglega þjónustu. Öll hótelherbergi eru með eigin útgangi út í hótelgarðinn og smá verönd. Herbergin eru vel útbúin og má þar nefna hita í gólfum sem heldur hita á gestum í hvaða veðri sem er.

Fáðu blóðið á hreyfingu t.d. með göngu á Hafnarfjall eða í golfi á einum besta velli utan Reykjavíkur. Eftir viðburðaríkan dag geturðu slakað á í einum af heitu pottunum okkar í hótelgarðinum.

Hótelstjóranir geta einnig sagt ykkur frá þeim fjölmörgu náttúruperlum sem Vesturlandið hefur upp á að bjóða.

  • Þriggja stjörnu hótel
  • 30 herbergi
  • Staðsett á 18 holu golfvelli
  • Aðeins klukkutíma akstur frá Reykjavík
  • Næg bílastæði fyrir framan hótelið
  • Fyrsta flokks veitingastaður
  • Bar / setustofa
  • Þráðlaust Internet (gegn vægu gjaldi)
  • Aðgangur út í garð frá herbergjum
  • Heitir pottar
  • Sérlega gott aðgengi fyrir fatlaða
  • Í alfaraleið á þjóðveginum
  • Reykjavík 70 km
  • Reykholt 45 km
  • Snæfellsjökull 110 km
  • Stykkishólmur 100 km
  • Hraunfossar 55 km

Afþreying

VETRARÆVINTÝRI Í BORGARNESI
Borgarnes er í aðeins klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík og því auðvelt að fara í stutta helgarferð yfir vetrartímann.

Í Borgarnesi er hægt að finna ýmislegt til dægrastyttingar og má þá sérstaklega nefna Landnámssetrið en þar eru leiksýningar, veitingastaður og verslun. Einnig mælum við með ferð í Brúðuheima en þar eru leiksýningar, safn og kaffihús. Njótið þess svo að fara í Geirabakarí eftir sundferðina en hungrið á það til að sækja mann heim eftir góða stund í heitu pottunum. Frekari upplýsingar um afþreyingu á svæðinu má finna á www.vesturland.is
Icelandair Hótel Hamar er staðsett rétt utan við Borgarnes. Öll herbergin á hótelinu eru með sér útgang í hótelgarðinn þar sem hægt er að slaka á í heita pottinum eftir viðburðarríkan dag. Á veitingastað hótelsins mun svo matreiðslumeistarinn töfraa fram gómsæta máltíð þar sem áhersla er lögð á hráefni úr héraðinu.
 

loading