Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Kort og staðsetning á Icelandair Hótel Flúðum

Icelandair Hótel Flúðir er staðsett á Suðurlandi, nokkuð langt uppí landi, en þó aðeins um 100 km. austan við Reykjavík. Flúðir er vaxandi þéttbýliskjarni og telja íbúar þar nú hátt í 800. Flúðir eru miðstöð menningar, þjónustu og félagslífs á svæðinu. Við erum stolt af því að vagga íslenskrar matjurtaræktar er í hreppnum og á svæðinu er öflugur landbúnaður enda skilyrði ákjósanleg. Veðrátta er með eindæmum blíð, frjósamur jarðvegur og óþrjótandi uppspretta af heitu og köldu vatni. 

Á Flúðum er oftar en ekki margt um manninn enda staðurinn víðfrægur fyrir sína miklu veðurblíðu og þá góðu aðstöðu sem ferðamönnum stendur til boða. Virk þátttaka þeirra gerir okkur mögulegt að standa fyrir öflugu menningar- og skemmtistarfi yfir sumrið sem tekur mið af fjölskyldunni allri.

Flúðir er staðsett nálægt vinsælum ferðamannastöðum og nægir þar að nefna það sem í daglegu tali er kallað Gullni hringurinn (Golden Circle) en það eru fallegu náttúruperlurnar Gullfoss, hverasvæðið Geysir og þjóðgarðurinn Þingvellir  

Hvernig á að komast

  • Rúta - Hægt er að taka rútu frá Umferðarmiðstöðinni, nálgast má áætlun hér
  • Einkabíl / Bílaleigubíl – Við mælum með því að þú hafir kort eða GPS tæki meðferðis þegar ferðast er til Flúða, nálgast má GPS hnit á forsíðu hótelsins (GPS hnit fyrir Hótel Flúðir: 64°7'53.21"N, 20°19'24.63"W).

Skrá sig inn og út af hótelinu

Hótelgarðurinn á Icelandair hótel Flúðum

Starfsfólk okkar er tilbúð að þjóna þér um leið og þú kemur.  Vinsamlegast hafið samband við okkur daginn fyrir komu ef þið þurfið að skrá ykkur inn á hótel fyrir þann tíma.

  • Hægt er að skrá sig inn á hótelið eftir kl. 14:00
  • Gestir þurfa að skrá sig út af hótelinu fyrir kl. 12:00 á hádegi á brottfarardegi
loading