Fundað í frið og ró á Icelandair Hótel Flúðum
Icelandair Hótel Flúðir er frábær staður fyrir fundi. Aðeins tekur um klukkustund að aka út úr höfuðborginni yfir í hið friðsæla og einstaklega fallega landbúnaðarhérað þar sem Icelandair Hótel Flúðir er vel staðsett.
Fundaraðstaðan rúmar allt að 80 manns, nýr og glæsilegur fundar- og ráðstefnusalur hefur verið tekinn í notkun og er hann útbúinn fullkomnustu tækjum. Fyrir utan hann er hægt að koma um 320 fundargestum fyrir bæði á og við hótelið.
Fundaraðstaðan er tæknilega vel útbúin. Skjávarpi með geislabendli, CD/DVD spilari, hljóðkerfi, hljóðnemi, VHS spilari og flipchart eru á meðal þess sem við getum boði uppá til þess að þjónusta þig. Við útbúum svo salinn eftir þínum óskum. Við getum svo séð um veitingar fyrir fundar- og ráðstefnugesti.
Fyrir veislur, brúðkaup, vínsmökkun eða aðra viðburði, vinsamlegast hafðu samband við okkur í síma 486 6630 eða í tölvupósti á netfangið fludir@icehotels.is
Dagsfundarpakkar
Hálfur dagur
- Kaffi, te og ávaxtasafi
- Morgun- eða síðdegishressing
Heill dagur
- Kaffi, te og ávaxtasafi
- Morgunhressing
- Tveggja rétta matseðill
- Síðdegishressing
Verð
- Hálfur dagur kr. 2.200,- á mann
- Hálfur dagur kr. 5.700,- á mann með tveggja rétta matseðli
- Heill dagur kr. 3.100,- á mann
- Heill dagur kr. 6.400,- á mann með tveggja rétta matseðli
Frekari upplýsingar má nálgast á netfanginu: fludir@icehotels.is eða í síma 444 4040