Bókaðu núna og sparaðu!
Icelandair Hótel Flúðir - Gullni hringurinn allt um kring
Verið velkomin á Suðurland
Icelandair Hótel Flúðir er á Suðurlandi í aðeins klukkutíma fjarlægð frá höfuðborginni. Hótelið býður upp á glæsilega þriggja stjörnu gistiaðstöðu á einni hæð.
Eftir langan og viðburðaríkan dag er kjörið að dvelja á Icelandair Hótel Flúðum og taka lífinu með ró. Framúrskarandi veitingastaður ásamt flottum bar í afslöppuðu umhverfi er hinn fullkomni staður til að njóta kvöldsins. Á veitingastaðnum er stórbrotið útsýni yfir fallega sveitina.
Á Flúðum getur þú valið um að liggja í bleyti í heita pottinum eða njóta fegurðar íslenskrar náttúru. Þekktustu staðirnir í nágrenni Flúða eru oftast kallaðir Gullni hringurinn (Golden Circle) og er þá átt við þjóðgarðinn á Þingvöllum og svo Gullfoss og hverasvæðið Geysi.
Njóttu þess að fara í laxveiði, skoða gróðurhúsin, fara á hestbak eða í flúðasiglingu niður Hvítá, þetta er aðeins brot af því sem þú hefur úr að velja til þess að gera dvöl þína sem ánægjulegasta.
Guðmundur Sigurhansson og Margrét Runólfsdóttir hafa rekið Icelandair Hótel Flúðir frá árinu 2001.
Samanlagt hafa þau áratuga reynslu í hótel- og veitingabransanum. Gummi er kokkur en áhugamál hans eru bílar og fótbolti þar sem enska liðið Arsenal er í uppáhaldi. Magga spilar bridds en hún æfir einu sinni í viku með Bridgefélagi Hrunamanna. Sameiginlegt áhugamál Gumma og Möggu er hestamennska og eiga þau tvo hesta. Stæll og Hugur, sem að flestra mati eru meðal flottustu gæðinga á landinu, eru í hesthúsi í Langholtskoti á Flúðum. Þess má einnig geta að listamaðurinn Tolli er í sérstöku uppáhaldi hjá þeim skötuhjúum og prýða verk hans alla veggi í opnu rými hótelsins.
Gummi og Magga eru sammála um það að erfitt sé að gera upp á milli áfangastaða í nágrenninu en nefna sérstaklega Laxárgljúfrin og þá sérstaklega vegna stórkostlegs útsýnis þegar horft er niður eftir gljúfrinu. Stuðlabergsnámurnar á Flúðum eru einnig ofarlega á listanum hjá þeim. Næsta sumar verður áhugavert fyrir þær sakir að áætlað er að opna náttúrulega hveralaug í Hvammi og gæti vel farið svo að sá staður verði ofarlega á vinsældalistanum.
Mikill meirihluti garðyrkjuframleiðslu landsins fer fram á Flúðum og ætti því ekki að koma á óvart að allt hráefni á hótelinu er ferskt og kemur daglega frá gróðurhúsunum í kring.
Nýlega var opnuð kjötvinnsla í Langholtskoti og eru þar ræktuð holdanaut sem koma til með að prýða matseðilinn á Icelandair hótel Flúðir fljótlega.
Magga og Gummi bjóða ykkur velkomin á Icelandair Hótel Flúðir!
- Þriggja stjörnu hótel
- 32 tveggja manna herbergi
- Hótelið er á einni hæð
- Næg bílastæði fyrir framan hótelið
- Glæsilegur veitingastaður
- Þráðlaust net (gegn vægu gjaldi)
- Flottur bar
- Glæsilegur hótelgarður með bar og heitum pottum
- Líkamsræktarstöð í 500 m fjarlægð frá hótelinu
- Stutt í vinsælar náttúruperlur – Gullni hringurinn „Golden Circle“
- Reykjavík 100 km
- Gullfoss 29 km
- Geysir 28 km
- Lýðveldisbærinn Stöng 20 km
- Árnes 24 km
- Laugarás 27 km
- Hvítá 30 km
- Selfoss 50 km
- Kerið 50 km
Afþreying
Gönguferðir og jöklaferðir eru líka vinsælar á þessum slóðum og það er svo sannarlega er hægt að gera sér dagamun í skammdeginu og njóta lífsins. Frekari upplýsingar um afþreyingu á svæðinu má finna á www.south.is
Á hótelinu er glæsilegur hótelgarður með bar og heitum pottum þar sem hægt er að njóta kyrrðarinnar og norðurljósanna. Matreiðslumeistarar hótelsins leggja áherslu á að nota það besta úr matarkistu héraðsins og töfra fram gómsætar máltíðir.






