Standard herbergi
Björt og falleg herbergi þar sem þægindi og íslensk hönnun eru í fyrirrúmi. Boðið er uppá 12 herbergi með aðgengi fyrir fatlaða, rúmlega 30 herbergi með svefnbekk fyrir börn og möguleiki er að tengja saman herbergi og opna á milli.
- Standard Classic 2ja manna herbergi.
- Standard Extra 2ja manna herbergi með svefnbekk fyrir barn.
- Standard Accessible 2ja manna herbergi með aðgengi fyrir fatlaða.
Aðbúnaður: baðherbergi með sturtu, hárþurrka, sjónvarp, þráðlaus nettenging (gegn vægu gjaldi), sími og kaffi og -te sett. Stærð frá 17 - 20 m2.
Fjölskylduherbergi
Björt og falleg herbergi þar sem þægindi og íslensk hönnun eru í fyrirrúmi. Það fer vel um fjölskylduna í rúmgóðu og notalegu herbergi. Herbergin eru staðsett á 5. hæð með glæsilegu útsýni til austurs yfir bæinn, sundlaugina og fjörðinn.
Aðbúnaður: baðherbergi með sturtu, hárþurrka, sjónvarp, þráðlaus nettenging (gegn vægu gjaldi), sími og kaffi og -te sett. Gistirými fyrir 2 fullorðna og 2-3 börn. Stærð 23 m2
Deluxe herbergi
Björt og falleg herbergi þar sem þægindi og íslensk hönnun eru í fyrirrúmi. Deluxe herbergin eru staðsett á 5. hæð og er útsýni til vesturs að Súlum og Hlíðarfjalli.
Aðbúnaður: Setustofa með svefnsófa, baðherbergi með sturtu, sloppar, inniskór, hárþurrka, sjónvarp, þráðlaus nettenging (gegn vægu gjaldi), sími og kaffi og -te sett. Stærð: 28 m2.
Svítan
Svítan er staðsett á 5. hæð með glæsilegu útsýni til austurs yfir bæinn, sundlaugina og fjörðinn. Svítan er björt og smekklega innréttuð með íslenska hönnun í fyrirrúmi. Svítan skiptist í stofu og svefnherbergi.
Aðbúnaður: Stofa, svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, sloppar, inniskór, hárþurrka, sjónvarp, þráðlaus nettenging (gegn vægu gjaldi), sími og kaffi og -te sett. Stærð 37 m2.






