Fundir á Icelandair Hótel Akureyri
Akureyri sem oftast er kallaður höfuðstaður Norðurlands er frábær staður fyrir fundi. Aðeins tekur um klukkustund að fljúga frá höfuðborginni til Akureyrar þar sem fundargestir geta blandað saman vinnu og afþreyingu.
Icelandair Hótel Akureyri er vel staðsett og stutt í alla þjónustu. Á hótelinu er boðið upp á góða fundarþjónustu en hægt er að stúka veitingasalinn af og búa til lítinn en aðlaðandi fundarsal fyrir hámark 25 manns. Þar eru öll þau tæki og tól sem þarf til að halda góðan fund. Við getum svo séð um veitingar fyrir fundargesti og að sjálfsögðu bjóðum við upp á flottann bar og veitingastað í nærandi umhverfi.
Frá pappír og penna til hljóðkerfis og fundarstands, við höfum allt sem þú þarft fyrir árangursríka fundi og ráðstefnur. Skjávarpar, skjáir, töflur og fléttitöflur eru til staðar og getum við hjálpað þér við skipulagið til þess að hámarka árangurinn.
Fundaraðstaða er undirbúin fyrir komu gesta og þingfreyjur / -þjónar eru til aðstoðar yfir fundartíma ásamt tæknimanni. Veitingar eru bornar fram eftir óskum. Við aðstoðum þig við undirbúning og skipulag hvers viðburðar og bjóðum upp á vingjarnlegt andrúmsloft, fagmennsku og sveigjanleika.
Dagsfundarpakkar
Hálfur dagur
Kaffi, te og ávaxtasafi
Morgun- eða síðdegishressing
Heill dagur
Kaffi, te og ávaxtasafi
Morgunhressing
Tveggja rétta matseðill
Síðdegishressing
Verð
Hálfur dagur kr. 2.200,- á mann
Hálfur dagur kr. 5.700,- á mann með tveggja rétta matseðli
Heill dagur kr. 3.100,- á mann
Heill dagur kr. 6.400,- á mann með tveggja rétta matseðli
Gildir fyrir 10 manns eða fleiri
Frekari upplýsingar má nálgast á netfanginu: conference@icehotels.is eða í síma 444 4040




