Á skíðum skemmti ég mér í Hlíðarfjalli

Vetrarævintýri á Norðurlandi er ógleymanleg upplifun fyrir alla. Veldu úr 3 frábærum skíðatilboðum á Icelandair Hótel Akureyri

Bókaðu snemma - ódýr hótelgisting á Icelandair Hótel Akureyri!

Bókaðu núna og sparaðu!
 

Bóka Núna

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
IATA/Tilboðskóði:

Icelandair Hótel Akureyri

Á besta stað í höfuðstað Norðurlands

Icelandair Hótel Akureyri er nýtt hótel sem var opnað á Akureyri 10. júní 2011. Hótelið mun bjóða upp á alls 101 herbergi, 63 herbergi voru tilbúin þegar hótelið opnaði og önnur 38 verða tilbúin þann 1. júní 2012.

Á hótelinu er jafnframt glæsilegur veitingastaður og bar sem og upphituð skíðageymsla með sérstökum inngangi fyrir vetrargesti en jafnframt fá gestir hótelsins 10% afslátt af skíðapassa í Hlíðarfjalli og geta keypt hann í gestamóttöku. Skíðarútan stoppar fyrir utan Icelandair Hótel Akureyri en hér má finna áætlun skíðarútunnar í Hlíðarfjall frá Icelandair Hótel Akureyri. Bakvið hótelbygginguna er fallegur hótelgarður með stórri verönd þar sem notalegt er að setjast niður og slaka á eftir góðan dag.

Höfuðstaður Norðurlands er frábær áfangastaður sem býður upp á flest það sem hugurinn girnist; sögufræg hús, söfn, lystigarð, golfvöll, kaffihús, verslanir og þjónustu. Skammt er í allar helstu náttúruperlur norðan heiða og skíðaparadís sem enginn verður svikinn af.

Sigrún Björk Jakobsdóttir er hótelstjóri á Icelandair Hótel Akureyri. Hún hefur margra ára reynslu úr ferðabransanum bæði sem hótelstjóri og í sölu Íslandsferða   en hún útskrifaðist úr IHTTI hótelstjórnunarskólanum í Sviss árið 1990. Að hennar mati er Glérárgilið eitt best geymda leyndarmálið á Akureyri en það er staðsett í miðjum bænum og gaman að rölta þar um  á góðum degi. Göngustígakerfi bæjarins er gott og tilvalið að byrja daginn á skokkhring í næsta nágrenni hótelsins.

Útsýni frá hótelinu er stórkostlegt en  ef menn vilja sjá á tiltölulega auðveldan hátt meira af bænum og Eyjafirði þá er gaman að ganga á Fálkafellið og þaðan inní Kjarnaskóg.  En skógurinn er yndislegur allan ársins hring og mikið aðdráttarafl á svæðinu. Yfir sumartímann er hægt að njóta veðurblíðunnar og fara í skemmtilega göngutúra og yfir vetrartímann er upplýst braut fyrir þá sem eru á gönguskíðum.

Helstu áhugamál hennar eru m.a skokk og lestur en hún er í leshring með skemmtilegum konum fyrir norðan sem hittast reglulega. Sigrún Björk er einnig mikill ferðalangur en hún byrjaði sitt heimshornaflakk 19 ára gömul og hefur komið víða við síðan þá og stefnir á að taka bakpokann aftur fram í framtíðinni og verður þá Suður-Ameríka líklegast fyrir valinu.

Sigrún Björk býður ykkur velkomin á Icelandair Hótel Akureyri.

  • Opnað 10. júní 2011
  • Frábær staðsetning
  • 63 herbergi 2011 / 101 herbergi 1. júní 2012
  • 12 herbergi með hjólastólaaðgengi
  • Glæsilegur veitingastaður og bar
  • Fallegur hótelgarður
  • Þráðlaust internet (gegn vægu gjaldi)
  • Hótelið stendur í næsta nágrenni við hina glæsilegu Sundlaug Akureyrar (2 mín. gangur)
  • Frír aðgangur að upphitaðri skíðageymslu með sérinngangi fyrir vetrargesti
  • Gestir hótelsins fá 10% afslátt af skíðapassa í Hlíðarfjalli
  • Skíðarútan stoppar fyrir utan hótelið
  • Sækja um laus störf
  • Fjarlægðir frá Akureyri
  • Flugstöð Leifs Eiríkssonar 425 km
  • Reykjavík 382 km
  • Ísafjörður um Djúpveg 567 km
  • Borgarnes 308 km
  • Brú í Hrútafirði 230 km
  • Blönduós 144 km
  • Goðafoss 47 km
  • Húsavík 91 km
  • Mývatn 99 km
  • Ásbyrgi 152 km
  • Dettifoss, austan Jökulsár 164 km
  • Egilsstaðir 265 km
  • Eiðar 274 km
  • Höfn í Hornafirði 446 km
  • Jökulsárlón 482 km
  • Skaftafell 573 km

Afþreying

MÝVATN - EINSTÖK NÁTTÚRUFEGURÐ OG DÝRALÍF
Mývatn um 37 km2 að stærð og með stærstu vötnum á Íslandi. Það er mjög vogskorið og í því eru um 50 eyjar og hólmar.

Meðaldýpi vatnsins er 2,5 m og mesta náttúrulega dýpi aðeins um 4 m. Lífríki Mývatns er einstætt og er nafn vatnsins dregið af þeim aragrúa mýs sem þar er. Talið að þar haldi sig fleiri andategundir en á nokkrum öðrum stað á jörðinni. Þá er þéttasta straumandabyggð jarðar við ofanverða Laxá og húsöndin verpir hvergi annars staðar í Evrópu.

GOÐAFOSS Í SKJÁLFANDAFLJÓTI
Um það bil 50 km frá Akureyri er að finna Goðafoss í Skjálfandafljóti í Bárðadal. Hann er 12 metra hár og 30 metra breiður í 4 meginhlutum.

Goðafoss er meðal stærstu fossa landsins og er jafnframt talinn einn sá fallegasti. Goðafoss skartar sínu fegursta allan ársins hring.

VETRARÆVINTÝRI Á AKUREYRI
Norðurland býður uppá fjölbreytta möguleika fyrir þá sem bæði vilja slaka á og njóta ævintýralegrar skemmtunar í sannkallaðri náttúruparadís.

Við leggjum til að fara á skíði í Hlíðarfjalli eða gönguskíði í Kjarnaskógi. Það er notalegt að kíkja í heimsókn í jólagarðinn þar sem íslenskir jólasiðir eru í hávegum hafðir. Frekari upplýsingar um afþreyingu má finna á www.visitakureyri.is

Icelandair Hótel Akureyri býður upp á einstaklega góða aðstöðu fyrir skíðafólk en í kjallara hótelsins er sérútbúinn upphituð skíðageymsla. Einnig er góð aðstaða á hótelinu til þess að slappa af eftir viðburðarríkan dag og hægt að fá sér heitt kakó fyrir framan arineldinn í setustofunni eða gæða sér á ljúffengum kvöldverð á veitingastaðnum.

Viðburðir

MENNINGARFERÐ TIL AKUREYRAR
Hof er miðstöð menningar á Norðurlandi og skapar verðugan ramma um menningar- og tónlistarlíf með því að bjóða upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir fjölbreytilega viðburði, s.s. á sviði tónlistar, leiklistar og danslistar.

Við mælum með skemmtilegri menningarferð til Akureyrar með viðkomu á skemmtilegan menniningarviðburð í Hofi. Sjá dagskrá hér

ÉLJAGANGUR Á AKUREYRI DAGANA 9 - 12 FEBRÚAR 2012
Skemmilega vetrarhátíðin á Akureyri sem enginn má missa af!

Spennandi dagskrá m.a Vetrarsportsýning EY-LÍV, sleðaspyrna og íscrosskeppni. 

Icelandair Hótel Akureyri býður uppá spennandi tilboð á gistingu.
 

ANDRÉSAR ANDAR LEIKARNIR Á AKUREYRI 18. - 22. apríl 2012
Fjölskylduhátíð á Akureyri sem enginn skíðaunnandi ætti að láta framhjá sér fara.

Icelandair Hótel Akureyri býður upp á einstaklega góða aðstöðu fyrir skíðafólk en í kjallara hótelsins er sérútbúin upphituð skíðageymsla. 

Mörg herbergjanna er hægt að tengja saman og þau eru því tilvalin fyrir fjölskyldufólk. Við bjóðum uppá kjarngóðan morgunverð, kvöldvöku fyrir börnin og kvöldverðarhlaðborð. Sundlaug Akureyrar er svo hinu megin við götuna hjá okkur.

Við hvetjum ykkur til þess að bóka tímanlega! Nánari upplýsingar hér.

loading