Fréttir
HönnunarMars er fjögurra daga hönnunarhátíð í Reykjavík þar sem dagskráin er barmafull af fjölbreyttum og spennandi viðburðum af ýmsu tagi. Hönnuðir bjóða almenningi að kynna sér heim hönnunar með áhugaverðum sýningum og fróðlegum fyrirlestrum sem endurspegla fjölbreytta flóru íslenskrar hönnunar og arkitektúrs.
HönnunarMars fer fram í fjórða skiptið, dagana 22. - 25. mars 2012. Frá upphafi hafa það verið íslenskir hönnuðir sem bera hitann og þungann af dagskrá hátíðarinnar sem spannar langa helgi og býður til ótal viðburða, innsetninga og sýninga.
Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má finna á vefsíðu HönnunarMars
Icelandair Hótel Reykjavík Natura er stoltur styrktaraðili HönnunarMars 2012.
Við minnum á opnunartíma allra hótela okkar yfir jól og áramót. Athugið að hægt er að hafa samband við miðlæga bókunardeild í síma 444 4000 eða senda tölvupóst á icehotels@icehotels.is á hefðbundnum skrifstofutíma þó svo að einstaka hótel séu lokuð.
Sjö jólavættir hafa komið sér fyrir víðsvegar í miðborginni og í Laugardalnum. Hver jólavætt á sitt tiltekna svæði þar sem henni er hampað. Leitaðu að þessum undarlegu verum og svaraðu spurningunum um þær á jólakortinu sem má finna á síðu www.visitreykjavik.is. Skilaðu niðurstöðunum í Jólapottinn 2011 fyrir 24. desember og þá átt þú möguleika á vinningi. Sjá nánar hér.
1. desember 2011
Sunnudaginn 4. desember ætlar Icelandair Hótel Akureyri að bjóða uppá fjölskyldustund í Stofu 14 frá kl 14 - 17. Þráinn Karlsson les jólasögu, Lopabandið spilar jólalög og boðið verður uppá kakó og smákökur við arineld gegn vægu gjaldi. “Hótelið verður jafnframt til sýnis og vonandi að Akureyringar nýti tækifærið og líti við og skoði þetta nýja hótel,” segir Sigrún Björk Jakobsdóttir hótelstjóri.
“Ég veit að það eru margir sem hafa áhuga á því og fjölmargir eru nú þegar búnir að koma og skoða. Sérstaklega er gaman að koma á 5. hæðina og sjá útsýnið út og suður fjörð. Það er svo sannarlega tignarlegt,” segir Sigrún Björk. Icelandair Hótel Akureyri við Þingvallastræti var opnað 10. júní sl. en þá voru 63 herbergi tilbúin. Hótelið mun bjóða upp á alls 101 herbergi en önnur 38 verða tilbúin þann 1. júní 2012. Á hótelinu er glæsilegur veitingastaður og bar sem og upphituð skíðageymsla með sérstökum inngangi fyrir vetrargesti.
1 . desember 2011
Snorri mun taka við nýju starfi sem hótelstjóri á Icelandair Hótel Reykjavík Marina frá og með áramótum.
Jólahlaðborðið á Satt hefur farið gífurlega vel af stað og jólastemningin notaleg.
Icelandair Hótel Akureyri býður upp á einstaklega góða aðstöðu fyrir skíðafólk en í kjallara hótelsins er sérútbúin upphituð skíðageymsla.
ITA stendur fyrir tískusýningu á SATT sem er á Icelandair Hótel Reykjavík Natura föstudaginn 18.nóvember frá 17.00 -18.00.
Pantanir í Jólaboð Icelandair Hótelsins á Akureyri fara vel af stað og ljóst að Akureyringar taka þessum nýja veitingastað fagnandi.


